04.01.1940
Efri deild: 102. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 704 í B-deild Alþingistíðinda. (1235)

95. mál, gengisskráning og ráðstafanir í því sambandi

Páll Zóphóníasson; Herra forseti! Ég hafði ætlað mér að tala við 1. umr. þessa máls, en var ekki viðstaddur þegar umr. var slitið. Þar sem frv. þetta mun ekki fara til n. eins og venja er til, vildi ég leyfa mér að benda á nokkurn galla á því, sem mér virðist vera.