10.03.1939
Efri deild: 15. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 708 í B-deild Alþingistíðinda. (1250)

3. mál, bráðabirgðatekjuöflun ríkissjóðs og jöfnunarsjóðs bæjar- og sveitarfélaga

*Magnús Jónsson:

Ég hefi skrifað undir þetta nál. vegna þess, að ég að svo komnu hefi ekki séð ástæðu til að leggja á móti frv. í heild sinni, vegna þess, að nú er skatta- og tollalöggjöfin í framhaldandi undirbúningi; og sé ég ekki ástæðu til að vera að hrófla við þessum tekjustofnum meðan till. liggja ekki fyrir um það.

En það er rétt til getið hjá hv. frsm., að minn fyrirvari er eins og verið hefir vegna þess, að ég tel ýms atriði í frv. ekki vera eins og ég óska. Ég álít, að skattstiginn í tekjuskattinum sé alveg óhæfilegur. Og þá held ég sérstaklega, að óhentugt sé til frambúðar að halda þeirri hröðu hækkun, sem er á tekjuskattinum, þegar um er að ræða tekjur frá 4 þús. kr. til 8 þús. kr., þar sem hækkunin nemur á þessu bili sumstaðar 2% á hverju þús. Það virðist sem það væri nóg stighækkun á tekjuskattinum, að hún næmi 1% við hvert þús. um tekjur almennt. Það er vitanlegt, að miklir örðugleikar eru oft á innheimtu tekjuskattsins, og þá sérstaklega þegar hann er mjög hár; og viðleitni manna til þess að reyna að komast hjá honum eykst að sama skapi sem hann er hækkaður.

Þá get ég ekki skrifað undir þetta frv. fyrirvaralaust, með því gerræði, sem framið var nýlega með því að ganga á bak því, sem ráðgert var um það um leið og hátekjuskatturinn var settur, að sá gjaldaauki skyldi skiptast milli ríkis og bæjarfélaga. Þó ekki sé það beint samningsrof, var það samt mjög nærri því að vera það, þegar svo sá afgangur, sem til bæjanna átti að ganga, er tekinn og látinn renna til annars. Ég hlýt að skrifa undir nál. með fyrirvara einnig vegna þess, að þetta ákvæði er framlengt. Ég hafði vonazt eftir, að þessu ákvæði yrði breytt og þetta fært í fyrra horf aftur, af því að reynslan af því máli, sem átti nú að styðja með þessu, hefir ekki heldur orðið svo ákaflega glæsileg.

Þá þykir mér rétt það, sem gert hefir verið hér, að fellt hefir verið niður úr frv. að ákveða nokkuð um það, til hvaða vega sérstaklega þetta benzínfé skyldi fara. Með því hefir Alþingi játað þá skömm, að hv. þm. hafa ekki haft þol í sér til þess að verja þessu fé til sömu sérstöku veganna ár eftir ár. Það álit ég vera með heldur meiri skömm, sem orðið hefir á Alþingi, hvernig farið hefir verið með þetta fé. Þess vegna álít ég það ekki nema rétt, að hv. þm. taki skiptingu þess út úr þessu frv. og láti sér nægja að rífast um það við fjárlagaumr. Ég álít, að rétt hefði verið að verja þessu fé til vega á aðalleiðunum kringum landið, vegarins norður og vegarins að norðan, sem aftur kemur á móti, þannig að þessir vegir mynda aðalleiðirnar norður og um Norðurland, og svo til aðalvegarins hér á Suðurlandi. En svo þurfti að skipta þessu fé sundur og fara með það út um allar Strandir og á yztu andnes til þess að kaupa með því kjósendur. Að þetta ákvæði hefir verið tekið út úr frv., er nokkurskonar löðrungur á hæstv. Alþ. Og mér fannst hv. frsm. láta vel yfir þessari breyt., og sagði hann, að svo ætti það að ganga til, að þessi skipting væri gerð í fjárl. Úr því sem komið var býst ég nú reyndar við, að ekki hefði verið til neins annað. Svona er nú víðsýnið hjá hæstv. Alþ. og hv. þm., að geta ómögulega séð svona hluti fyrir.

Þá hefir verið felld niður úr 4. gr. heimildin til að endurgreiða kola- og salttollinn, og færð sú ástæða fyrir því, að það eigi að gera eitthvert meginátak fyrir sjávarútveginn í sambandi við till. milliþn. í sjávarútvegsmálum. En það hefði nú verið viðkunnanlegra, þar sem alllangt er þegar liðið af þingi, að eitthvað hefði sézt af því, sem sú hv. n. leggur til sjávarútveginum til nytsemdar, a. m. k. samtímis því, sem þetta frv. kemur fram með till. um að fella niður þessa heimild. Skal ég þó ekki efast um, að það eigi að gera slíkt. En ég vil geta þess, að í tollskrá þeirri, sem liggur nú fyrir hæstv. Alþ., var reiknað með 12% tolli, sem var vegna þess, að n. var ekki kunnugt um, að þessi undanþága yrði numin úr gildi. Og svo var einnig um fleiri vörur, að n. ákvað toll á þeim vegna þess, að henni var ekki kunnugt um annað en að þessi undanþáguheimild um kola- og salttollinn héldi áfram að vera í gildi. Ég get þessa til athugunar að þessu leyti, að í tollskránni er áætlað þessu hærra um tolla á sumum vörum en mundi hafa verið, ef okkur hefði verið kunnugt um, að undanþáguheimildin yrði felld úr þessu frv.

Að svo komnu hefi ég svo ekki meira að segja viðkomandi mínum fyrirvara um nál.