22.03.1939
Efri deild: 22. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 712 í B-deild Alþingistíðinda. (1257)
3. mál, bráðabirgðatekjuöflun ríkissjóðs og jöfnunarsjóðs bæjar- og sveitarfélaga
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Í 4. gr. frv. um bráðabirgðatekjuöflun ríkissjóðs er gert ráð fyrir 11% viðauka á skatta og gjöld. Ýmsir hafa beitt sér fyrir, að þetta yrði 12%, og sé ég ekki ástæðu til að skýra það nánar. Fjmrh. hefir skrifað n. bréf um þetta, og vildi ég, að fjhn. athugaði það vel.