18.12.1939
Efri deild: 87. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 715 í B-deild Alþingistíðinda. (1268)

3. mál, bráðabirgðatekjuöflun ríkissjóðs og jöfnunarsjóðs bæjar- og sveitarfélaga

*Frsm. (Bernharð Stefánsson) :

Ég get ekki svarað spurningum hv. 1. þm. N.- M. nánar en hv. formaður n. hefir gert. Annars væri rétt fyrir hann að beina spurningum sínum til hæstv. atvmrh., sem nú mun vera hér nærstaddur. Ég álít, að því fari fjarri, að með þessu sé verið að lögbanna að verja fé til malbikunar. Það er ekki bönnuð sú aðferð við vegagerð fremur en t. d. að bera möl á vegi. Aðeins er farið fram á að nema burt lagaskylduna til malbikunar, sem við teljum, að sé í frv., ef það verður samþ. óbreytt.