03.01.1940
Neðri deild: 101. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 718 í B-deild Alþingistíðinda. (1284)
3. mál, bráðabirgðatekjuöflun ríkissjóðs og jöfnunarsjóðs bæjar- og sveitarfélaga
*Pétur. Ottesen:
Ég vil leyfa mér að bera fram brtt. við brtt. á þskj. 677. Þar er gert ráð fyrir, að þessi skattur renni til bæjar- og sýslusjóða, en ég tel eðlilegra, að hann renni til bæjar- og sveitarsjóða, því það er miklu meira samræmi í því, úr því að farið er inn á þessa braut á annað borð, að viðkomandi sveitarsjóður fái þetta greitt beint til sín, eins og bæjarsjóðir eiga að fá það, því sumstaðar stendur þannig á í sumum sýslum, og kauptúnin eru eins stór eða stærri en sum bæjarfélögin og þar af leiðandi hærri tekjur af eignarskattinum, sem koma úr sumum þessum kauptúnum en úr bæjarfélögunum. Því finnst mér óeðlilegt, að þeir hlíti ekki sömu réttindum í þessum efnum og bæjarfélögin. Þá má ennfremur geta þess, að þegar jafnað er niður sýslusjóðsgjöldum í hreppum, þá er jafnað niður á tekjur og eignir hreppsins í heild, svo það myndi í þessu tilfelli koma óeðlilega þungt niður á sumum hreppum, ef þeir ættu ekki að njóta þessara hlunninda. Enda held ég, að það sé í fullu samræmi við tilgang brtt., að því verði hagað þannig, að þessi hluti tekju- og eignarskattsins verði greiddur, eins og á að greiða hann til bæjarfélaganna, til þeirra sveitarfélaga, þar sem um slíkan skatt er að ræða.
Ég ætla að leyfa mér að afhenda forseta brtt., sem gengur út á það, að í stað „sýslusjóðs“ komi: sveitarsjóðs.