03.01.1940
Neðri deild: 101. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 724 í B-deild Alþingistíðinda. (1297)
3. mál, bráðabirgðatekjuöflun ríkissjóðs og jöfnunarsjóðs bæjar- og sveitarfélaga
*Pétur Halldórsson:
Herra forseti! Ég get ekki skilið, að fulltrúi Framsfl. í bæjarstj. Reykjavíkur sé að semja um sérréttindi í bæjarstj. Reykjavíkur hér í þingsölunum. Hann hefir sama rétt í bæjarstj. og aðrir bæjarfulltrúar, og getur hann hvenær sem hann vill snúið sér til mín, og getur hann þá beðið um að fá sama rétt og aðrir bæjarfulltrúar í þessu efni og fengið hann strax. Nú byggðist þetta tal hv. þm. V.-Húnv. á talsverðum misskilningi. Hér er talað um að leggja fram skýrslu um áramót yfir allar skuldir bæjarfélagsins. En frsm. óskaði eftir í ræðu sinni, og umr. hafa snúizt um það, að bæjarfulltrúi hér í Reykjavík fái að vita um það, hvaða útsvör eru felld niður og hvaða útsvör eru lækkuð. Um þau, sem lækkuð eru, vita allir bæjarfulltrúar, því um það er útgert á bæjarstjórnarfundum og rætt um hvern einstakan, sem óskar þess, að útsvar sitt sé lækkað, nema undir þeim kringumstæðum, þegar bæjarráði er falið þetta. En það má ekki lækka útsvar á neinum manni meira en 200 kr. Þetta er gert til þess að bæjarstjórn þurfi ekki að taka til meðferðar hvert smámál, sem fyrir kann að koma. Svo eru á ári hverju strikuð út einhver útsvör, sem eru óinnheimtanleg, þegar búið er að gera tilraun til lögtaks. Þegar það hefir verið gert, er gerð skrá yfir þetta, og er hún til sýnis öllum bæjarfulltrúum. Og aldrei er nokkuð af því, sem bærinn á að innheimta, hvorki útsvar eða annað, fellt niður án þess að allir bæjarfulltrúarnir fái um það að vita. En menn eru á ýmsu máli um það, hvort það sé réttlátt að semja skrá yfir alla þá, sem ekki hafa goldið útsvör sín, og prenta hana. Þetta er það mikið verk, að það er ekki von, að neinn geti komið 1., 2. eða 3. jan. og óskað að sjá, hvort menn hafi greitt útsvör sin, og hver hafi ekki goldið þau að fullu, þar sem í Reykjavík eru nú um 16 þús. gjaldendur. Og enginn bæjarfulltrúi endist til þess að fara gegnum allar skýrslur og plögg þessu viðkomandi til þess að þetta sé hægt að fá að vita strax um áramót.
Þetta atriði, hvort eigi að taka upp þann sið að birta alla þá, sem skulda um áramótin, og alla þá, sem fríðinda njóta á einhvern hátt, og þá sérstaklega um framfærslustyrkinn, verða menn aldrei á eitt. sáttir. Og það er satt, sem hv. þm. V.-Húnv. sagði, að fulltrúi Framsfl. kom einu sinni með þetta á bæjarstjórnarfund, og það skyndilega. Og af því að það láðist að drepa till. strax, liggur hún hjá bæjarráði enn. En ég sé ekki, að hæstv. Alþ. geti hér tekið ráðin af bæjarstj. Reykjavíkur um, hvað hún gerir í þessum efnum.
Það er svo kostnaðarsamt að semja og prenta skýrslur þær, sem hér er talað um, að ef þær ættu að verða almenningseign, þá hygg ég, að ekki myndi nægja til þess það framlag, sem bærinn fær úr ríkissjóði fyrir náð Alþ. með þessu frv. Fullyrði ég það þó ekki. En það er ákaflega mikið verk.
Hitt er annað mál, að bæjarfulltrúarnir geta með eðlilegum hætti, þegar svoleiðis er, að nokkur vegur er að verða við þeirra óskum, fengið þessar upplýsingar, eins og allar aðrar upplýsingar, sem þeir mega og eiga að fá. Það er ekki hægt að verða við slíkum tilmælum, að gefa slíkar upplýsingar hvenær sem er, og sízt um áramótin, hvað hver maður skuldi bænum.
Undir öllum kringumstæðum er þessi till. ekki þess eðlis, að það geti komið til mála fyrir hæstv. Alþ. að gera hana að skilyrði fyrir því, að bæjarfélögin fái þennan litla hluta af beinum sköttum. Og ég vona, að það verði haft þannig, að í staðinn fyrir, að nú fær ríkið mestalla beinu skattana, þá fái bæjarfélögin þá í framtíðinni sem mest, því að í þá átt hlýtur að stefna hér, að ríkið þoki fyrir bæjar- og sveitarfélögum frá þessum sérstaka tekjustofni, sem er beinu skattarnir.