29.12.1939
Sameinað þing: 23. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 730 í B-deild Alþingistíðinda. (1314)
161. mál, fjáraukalög 1938
*Jón Pálmason:
Eins og hv. þm. Rang. tók fram, hefi ég skrifað undir nál. með fyrirvara, með tilliti til þess, að ég hefi ekki fengið neinar upplýsingar um það, eftir hvaða heimildum borgaðar hafa verið út 52 þúsund krónur til skipa á Austfjörðum. Þetta fjáraukalagafrv., sem liggur fyrir, kemur nokkuð seint fram, og er það að sumu leyti óviðfelldin regla, að vera að drasla með fleiri en ein fjáraukalög fyrir hvert ár. Það var komið með fjáraukalög fyrir 1938 áður en aðallögin komu til greina. Þetta er sú regla, sem farið hefir verið eftir að undanförnu. Viðvíkjandi þeirri upphæð, sem minn fyrirvari er bundinn við, stendur það í skýringargreininni, að hún væri veitt vegna þess, hve illa aflaðist og vertíðin því misheppnuð. Af þeim sökum hafi verið borgaðar 50 kr. fyrir hvern mann á stærri vélbátum. Það þýðir ekkert að ræða mikið um þetta, en ég fyrir mitt leyti mun ekki ljá því atkv. að órannsökuðu máli. Vænti ég þess, að hæstv. viðskmrh. veiti nánari upplýsingar um þetta.