03.03.1939
Neðri deild: 12. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 57 í B-deild Alþingistíðinda. (132)
25. mál, ostrurækt
*Frsm. (Sigurður E. Hlíðar):
Herra forseti! Þetta frv. á þskj. 28 er gamall kunningi frá síðasta þingi, en dagaði þá uppi. Þá komst það til 2. umr. Það var tekið upp eftir ósk atvinnumálaráðuneytisins af sjútvn., að undangenginni rannsókn faglærðra manna; og sjútvn. gekk einhuga að því að flytja þetta mál að vel athuguðu máli. Og nú komu enn tilmæli frá atvmrn. um að flytja þetta frv. hér enn á ný.
Ég sé ekki ástæðu til að hafa langa framsöguræðu um þetta frv., því að grg. þess segir til um, hvaða rök standa að þessu máli. Hér er um merkilega nýjung að ræða, sem gæti haft bæði beint og óbeint séð hagnaðarvon í för með sér. Sjútvn. er enn á sama máli og í fyrra um þetta mál; hún stendur einhuga með því, að málið verði alvarlega tekið til athugunar hér og fyrirgreiðslu.
Einstakir nm. áskilja sér rétt til að bera fram brtt. við frv.
Ennfremur má taka fram, að þar sem í fyrra heyrðust raddir um það, að þessar tilraunir, sem hér er farið fram á, að gerðar verði um ostrurækt á fjörðum inni, geti haft í för með sér truflanir á fiskigöngum og gert einnig meiri skaða, þá hyggur sjútvn., að með breyt. á frv. megi fyrirbyggja það, sem ótti hefir verið um hjá sumum mönnum í sambandi við tilraunir með ostrurækt.