08.03.1939
Neðri deild: 15. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í B-deild Alþingistíðinda. (134)
25. mál, ostrurækt
*Pétur Ottesen:
Ég var ekki viðstaddur hér í hv. d., þegar þetta mál var til 1. umr. Gafst mér þess vegna ekki kostur á að heyra, hvort nýjar ástæður lægju til grundvallar fyrir því, að þetta frv. er tekið upp aftur nú. Á síðasta Alþingi var þetta mál flutt af sjútvn. eins og það er flutt nú. Eftir að nokkur gagnrýni hafði farið fram við 1. umr., sem var snemma á þingi, var málið ekki tekið fyrir aftur á því þingi. Nú sýnist mér, eftir því sem ég get borið saman frv., sem nú er flutt, og grg. þess og það, sem flutt var á þinginu í fyrra, að það sé alveg óbreytt.
Þetta frv. er fram komið meðfram vegna þess, að eitthvert félag í Svíþjóð hefir farið fram á að fá einkaleyfi til 15 ára til ostruræktar hér við land. Það hafa farið fram einhverjar rannsóknir um, hvaða staðir muni heppilegastir til þess. Eru það Hvalfjörður og Kollafjörður, sem þá helzt koma til greina.
Í þeim plöggum, sem ég sá frá þessu sænska félagi í fyrra, minnist ég þess, að þar er skýrt tekið fram, að sá fjörður, sem slík tilraun til ostruræktar yrði gerð i, yrði gersamlega að vera friðaður fyrir öllum öðrum veiðum. Það væri því alls ekki hægt að koma við að friða einstök svæði innan þessara fjarða.
Um Hvalfjörð er það að segja, að ég tel það ekki ná neinni átt að friða þann fjörð og megi alls ekki undir nokkrum kringumstæðum útiloka veiðiskap þar fyrir slíkar tilraunir sem þessa ostrurækt, þótt hún kynni að eiga nokkurn tilverurétt. Þarna í Hvalfirði er þorskveiði, laxveiði, hrognkelsaveiði, beitutekja og kolaveiði nokkur. Á síðastl. sumri var stunduð dragnótaveiði á þessu svæði. Það er þess vegna svo fráleitt að gera þar þær tilraunir, sem hafa það í för með sér, að útilokaðir yrðu þeir hagsmunir, sem menn hafa af að stunda þarna þessar margbreyttu veiðar, sem geta orðið nokkur stuðningur fyrir bændur, ekki sízt á þessum erfiðu tímum, þegar fjárpestin er að eyðileggja bústofninn.
Nú er samkv. frv. atvmrh. gefið óskorað vald til að friða stór svæði eins og honum sýnist, þótt að vísu eigi að koma bætur fyrir hlunnindamissi. En þó er í frv. ekkert tekið fram. hver eigi að greiða þær bætur, heldur aðeins sagt, hver eigi að kosta matið eða yfirmatið. Ef aðeins um þessa tvo staði hér við land er að ræða til ostruræktar, þ. e. Hvalfjörð og Kollafjörð — sem algerlega þyrfti þá að friða — og ef allt er tekið bókstaflega, sem tekið er fram í bréfi frá þessu sænska félagi, þá álít ég það alveg útilokað að stunda slíka veiði hér. Mig langar til að vita, hvort þetta frv. er byggt að öllu leyti á sömu óskum frá sænska félaginn og frv. í fyrra, þannig að það eigi að gera þessar tilraunir á sama grundvelli, að banna allan veiðiskap á þeim svæðum, sem til
raunirnar eiga að fara fram á. Ég álít, að ef þetta frv. á fram að ganga, þurfi að gera við það viðtækar brtt. til 3. umr.