08.03.1939
Neðri deild: 15. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 59 í B-deild Alþingistíðinda. (135)

25. mál, ostrurækt

*Frsm. (Sigurður E. Hlíðar):

Herra forseti! Eins og ég gat um við 1. umr., var frv. sama efnis borið fram í fyrra að tilhlutun atvmrn. Eins og hv. þm. Borgf. tók fram, er frv. óbreytt frá því í fyrra. Það má vera, að hæstv. atvmrh. hafi eitthvað fram að bera í þessu máli, sem ekki er á prenti. Geri ég ráði fyrir, að hann muni nú við umr. gefa slíkar upplýsingar, et um þær er að ræða. Sjútvn. var einhuga um að flytja þetta frv., eins og í fyrra, og engar þær ástæður hafa komið fram, sem geta gert það að verkum, að sjútvn. hviki frá áliti sínu, sem byggt var á rannsóknum um þetta mál.

Ágreiningur hv. þm. Borgf. er um það, að honum finnst, að með frv. þessu sé algerlega lokað fyrir veiðiskap eða nytjar af þeim fjörðum, sem rannsóknirnar yrðu gerðar i. Ef ég man rétt, var lagt hér fram í fyrra kort af þeim stöðum, sem tiltækilegastir þóttu til þess að gera þessar tilraunir á. Þetta kort var gert að tilhlutun Árna Friðríkssonar fiskifræðings, sem mun hafa einna mesta þekkingu hérlendra manna um ýmsa aðstöðu hér við strendur landsins. Hann hefir tjáð mér það munnlega, að þessir staðir sunnanvert við Faxaflóa væru tiltækilegastir, því þar væri helzt það hitastig. sem þyrfti. Ef ég man rétt, voru 15 staðir markaðir á þessu korti hér við Faxaflóa, þar á meðal nokkrir í Kollafirði, og flestir fyrir innan Hvalfjörð og alla leið vestur á Seltjarnarnes. Svo er tekið fram í 1. gr. frv: „Atvmrh. skal heimilt að ákveða í reglugerð, að tiltekin svæði í fjörðum inni skuli um tiltekinn tíma friðuð til ostruræktar fyrir hverskonar veiðum, öðrum en ostruveiðum. Ennfremur skal þar ákveðið, hvernig og á hvaða árstíma heimilt sé að stunda ostruveiðar“. Er því eftir þessu korti aðeins að ræða um vissa parta af fjörðunum, sem þyrfti að friða, og helzt voga eða vikur, sem kæmu til greina um tilraunir til ostruræktar, því þeir veiðistaðir eru aðeins miðaðir við grunnsævi. Þess vegna er Hvalfjörður, eftir því sem Árni Friðriksson telur, ekki í hættu fyrir truflun á laxa- og fiskigöngum né veiðiskapur héraðsbúa.

Í 3. gr. er ekki tekið fram, hverjir eigi að borga skaðabætur. Ég álit það liggja opið fyrir, að annaðhvort sé það ríkissjóður eða þeir, sem fá einkaleyfi til tilraunanna. Það bendir margt til þess, að það verði það félag, sem á undanförnum árum hefir sótt um einkaleyfið. Ennþá er tími til að gera brtt., sem nauðsynlegar kunna að þykja, eins og nm. hafa áskilið sér rétt til að gera. Frá sjónarmiði okkar í sjútvn. eru engar þær ástæður fyrir hendi, sem geti unnið á móti framgangi þessa máls, í það minnsta ekki svo stórvægilegar, að nein hætta sé á ferðum, einkanlega með tilliti til þess, að við erum reiðubúnir til að taka brtt. til greina, sem fram kunna að koma við 3. umr. málsins.