14.03.1939
Neðri deild: 19. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 61 í B-deild Alþingistíðinda. (141)

25. mál, ostrurækt

*Pétur Ottesen:

Ég vil aðeins þakka hv. sjútvn. fyrir undirtektirnar. Út af því, að einhver ágreiningur kunni að vera um 2. brtt., vildi ég bara mælast til þess, að hinn liðurinn gyldi þess ekki. Raunar vildi ég, að því yrði slegið föstu, að sá, sem greiði þessar skaðabætur, sé sá, sem einkaleyfið hefir fengið.