04.04.1939
Neðri deild: 36. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 767 í B-deild Alþingistíðinda. (1454)

66. mál, laxveiði í Nikulásarkeri

*Flm. (Bjarni Ásgeirsson) :

Þetta litla mál skýrir sig eiginlega sjálft með grg. Lög þau, sem hér er lagt til að afnema, voru á sínum tíma sett til þess að friða Nikulásarker í Norðurá, vegna þess að netjaveiði þar hamlaði laxgöngu uppeftir ánni. En þegar laxveiðilögin voru sett, kom af sjálfu sér, að þessi friðun kom með samþykkt laganna, og urðu þá þessi gömlu l. ónýt og gagnslaus. Hinsvegar eru í þeim ákvæði um bætur fyrir missi á veiði í Nikulásarkeri, sem með laxveiðilögunum féllu í burtu, svo að þessi tvenn l. stangast á að þessu leyti. Þess vegna hafa hlutaðeigendur farið fram á við mig að flytja frv. um að fella þessi l. úr gildi.

Ég legg til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og landbn.