21.04.1939
Neðri deild: 45. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 781 í B-deild Alþingistíðinda. (1488)
29. mál, hegningarlög
*Einar Olgeirsson:
Ég vil mótmæla því, að þetta frv., með eins miklum breyt. og í því felast á okkar hegningarlöggjöf, sé sett í gegnum þingið á þann hátt, sem nú virðist tilætlunin. Það nær ekki nokkurri átt, ef Alþ. er sá aðili, sem setja á l. í þessu landi, að gefa ekki hv. þm. meira tækifæri en með meðferð þessa máls er gert til þess að hafa eitthvað um það að segja, hvaða hegningarl. eru sett í þessu landi.
Það er alviðurkennt, að þessi lagabálkur sé einhver hinn þýðingarmesti, sem Alþ. getur yfirleitt fjallað um. Og það var sérstaklega tekið fram af hv. frsm. allshn., að hegningarl., sem nú gilda, séu orðin algerlega úrelt og séu í mörgum atriðum búin að gilda um 70 ár og þess vegna sé brýn þörf á því að breyta þarna um. Nú er það vitanlegt, að þegar á að samþ. hegningarlöggjöf og hreyta því í slíkri löggjöf, sem fyrir er, þá verður allmikill vandi að velja það, sem gengið er út frá, að muni standa lengi sem l. En hvernig hefir þetta verið framkvæmt nú á þessu þingi, sem af er? Það má vel vera, að undirbúningur undir bessa löggjöf sé mjög sæmilegur frá hendi þeirrar n., sem um þetta mál hefir fjallað. Ég treysti mér ekki fullkomlega til að dæma um það sem leikmaður. En þessi n. var skipuð til þess að undirbúa þetta mál fyrir Alþ., en ekki til þess að semja l. fyrir Alþ. Tilgangurinn með Alþingi er sá, að þar gefist mönnum, sem hafa mismunandi skoðanir og eru fulltrúar mismunandi flokka og hluta þjóðarinnar, tækifæri til þess að fjalla um l. og koma fram með brtt. við lagafrv. og bera þau saman við það, sem verið hefir bezt í löggjöf nágrannalandanna, og ennfremur til þess, að þm. geti leitað aðstoðar þeirrar, sem nauðsynleg er til þess að l. — og þá í þessu tilfelli þessi stóri og vandasami lagabálkur — megi verða sem bezt úr garði gerð. En það hefir heyrzt í sambandi við þetta lagafrv., að svo góðir menn hafi undirbúið þetta frv. að hv. þm. eigi helzt ekki að ætla sér þá dul að koma fram með brtt. við það lagafrv., sem jafnvel hæstaréttardómarar hafa verið settir til að semja. Ég verð nú að segja það, að ef á að fara þannig að í hæstv. Alþ., þá er eins gott að afhenda okkar löggjafarvald í hendur nokkurra manna, svo sem tveggja eða þriggja manna, sem kosnir væru til að semja l. Ég mótmæli því algerlega, að bað sé sæmilegt fyrir þingið að samþ. þennan lagabálk á þann hátt, sem nú virðist vera stofnað til. Þetta frv. var sett í gegnum 1. umr. hér í hv. d. á þann hátt, að enginn talaði um það, og eftir því sem virtist átti það að fara nefndarlaust gegnum þingið. Svo fékkst það fyrir harðfylgi þm., að frv. var vísað til n. Nú virðist það vera tilgangurinn, að frv. þetta gangi í gegnum þingið svo að segja án þess að hv. þm. fái nokkur tök á að fjalla um það. Það er mælzt til þess að hv. frsm. allshn., að ekki verði komið fram með brtt. við frv., heldur verði það látið fara í gegn án þess að nokkrum stafkrók í því verði breytt. Ég hefi borið þetta saman við meðferð slíkra l. sem þessara í öðrum löndum, t. d. í Danmörku. Þar tók meðferð þeirra langan tíma áður en þau voru endanlega samþ. Þegar þessa er gætt, virðist það bera vott um það, hversu mjög Íslendingar liti niður á þingræðið, rétt eins og bak við stæði löngun til að þurrka það alveg út, — að ég nú ekki tali um þá ást, sem þeir segjast hafa á lýðræðinu. Í Danmörk mun það hafa tekið fjölda mörg ár að breyta hegningarlöggjöfinni þar. Þau l. voru sett í margar n. Þingmenn þar komu fram með ótal kröfur um þau. En hér á okkar háa Alþ. er það svo, að helzt engin n. vill taka þau til meðferðar. Því síður, að hægt sé að komast að nokkru samkomulagi við þá menn, sem eiga sæti í þeirri n., Sem tekur málið til meðferðar, um að fá frv. breytt á nokkurn hátt.
Ég vil þó freista þess ásamt öðrum hv. sósíalistaþm., að bera fram nokkrar brtt. við frv. fyrir 3. umr. málsins, enda þótt það hafi e. t. v. ekki mikið að þýða, því að auðséð er, að þessu frv. er ætlað að fara í gegn áður en þingi verður frestað, nú innan skamms. Ég álít, þó að margt þyrfti að athuga í þessu frv., að það helzta, sem við munum freista að breyta í því, sé það, sem mest liggur í augum uppi, að eru gallar á frv. Ég skal strax taka það fram, að ég vil alls ekki neita því, að ég álit, að meginhluti þessara l. séu stórkostlegar framfarir í okkar löggjöf, eins og vænta má, þar sem við erum að afnema með ýmsum köflum þeirra eldgömul lagafyrirmæli, sem komu algerlega í mótsögn við réttarmeðvitund þjóðarinnar.
Það, sem við sósíalistar munum koma með nokkrar brtt. um, er það, sem kemur til með að snerta það, sem gæti orðið til þess að þrengja að því frelsi og mannréttindum, sem við eigum að njóta samkv. núgildandi l. og gæti að einhverju leyti gefið valdstjórninni alveg óþarflega mikla vernd gegn réttlátri gagnrýni borgaranna. Ég vildi í því sambandi t. d. benda á XII. kafla frv., um brot gegn valdstjórninni, og í þeim kafla eru í 108. gr. ákvæði svo hljóðandi (með leyfi hæstv. forseta) :
„Hver, sem hefir í frammi skammaryrði, aðrar móðganir í orðum eða athöfnum eða ærumeiðandi aðdróttanir við opinberan starfsmann, þegar hann er að gegna skyldustarfi sínu, eða við hann eða um hann út af því, skal sæta sektum, varðhaldi eða fangelsi allt að 3 árum. Aðdróttun, þótt sönnuð sé, er refsiverð, ef hún er borin fram á ótilhlýðilegan hátt“.
Þessi síðasta málsgr.: „Aðdróttun, þótt sönnuð sé, er refsiverð, ef hún er borin fram á ótilhlýðilegan hátt“, er þannig, að ég vil um hana segja, fyrir nú utan allt annað í þessari setningu, að hún er ekki sérstaklega þjóðleg, þar sem við Íslendingar munum nú vera einna óvarfærnastir í orðum af öllum þjóðum í Evrópu, — að ef einhver segir frá einhverju, sem stendur í nánum tengslum við valdstjórnina, þá skuli hann sæta sektum, þó að hann geti sannað sitt mál, ef hann segir það á „ótilhlýðilegan hátt“!! Við höfum nú nokkurnveginn sannanir fyrir því af meðferð mála hér á landi, hvað talið er ótilhlýðilegt. Hingað til hefir ekki verið hægt að segja neitt orð satt um mann án þess að það hafi verið hægt að höfða út af því gegn honum meiðyrðamál. Og þarna er um opinberan starfsmann að ræða, og þó að maður geti meira að segja sannað það, sem sagt er um hann, sem oft er nú erfitt að sanna, jafnvel þótt allir viti, að það er satt, þá þarf ekki annað en að það sé borið fram á „ótilhlýðilegan hátt“, þá er fyrir það bægt að dæma menn í sektir, varðhald eða fangelsi allt að tveimur árum. Með þessu móti er verið að höggva afskaplega nærri ritfrelsinu í landinu og nærri því, sem er grundvöllurinn undir lýðræði og þingræði, ef rétturinn til þess að gagnrýna gerðir valdstjórnarinnar er af mönnum tekinn, en það aðhald, sem skapað er með því að menn megi gagnrýna gerðir valdstjórnarinnar, er einn sterkasti þátturinn í lýðræðinu yfirleitt. Og ég vil segja, að ekki sízt þar, sem embættismannabákn er eins tiltölulega mikið eins og hér á landi og svo margir þm. jafnframt opinberir starfsmenn ríkisins, þá er það fremur óviðkunnanlegt fyrir þingheim að samþ. þetta. Ég mun því flytja brtt. um að þetta: „Aðdróttun, þótt sönnuð sé, er refsiverð, ef hún er borin fram á ótilhlýðilegan hátt“, verði fellt burt. Við munum líka sósíalistar bera fram brtt. við fleira í þessu frv., svo sem við XXV. kafla, um ærumeiðingar og brot gegn friðhelgi einkalífs. Það er sérstaklega 237. gr., sem við munum bera fram brtt. við. Hún hljóðar svo (með leyfi hæstv. forseta):
„Ef aðdróttun er borin fram á ótilhlýðilega móðgandi hátt, má beita refsingu samkvæmt 234. gr., enda þótt sönnur hafi verið á hana færðar.
Þegar refsingar er krafizt samkvæmt þessari grein eingöngu, er ekki heimilt að færa sönnur á aðdróttunina, nema nauðsyn þyki til bera vegna almannahags“.
Ég vil segja, að mér finnst afskaplega langt gengið með þessari gr., að banna að segja sannleikann, jafnvel þó að maður geti sannað sitt mál. Það er nógu oft um það deilt, hvort menn megi segja sannleikann, þegar menn geta ekki sannað hann. En þarna á beinlínis að færa það í l., að þó að menn geti fært sönnur á það, sem menn segja, þá sé refsivert að segja það undir vissum kringumstæðum, „ef aðdróttun er borin fram á ótilhlýðilega móðgandi hátt“. Ég gat ekki látið hjá líða að tala um þetta nú við 2. umr., enda þótt brtt. við frv. verði að bíða þangað til við 3. umr.
Að lokum við ég beina því til hv. þdm., þó að hegningarlagafrv. þetta sé að öðru leyti gott, að þeir vilji nú á milli umr. ráðfæra sig við sína eigin samvizku um það, hvort ekki væri réttara að fella þessar gr. burt. Í okkar stjórnarskrá er Íslendingum tryggt alveg sérstaklega ritfrelsi. Þar er m. a. rík áherzla lögð á, að ritskoðun megi aldrei leiða í l. En það er hægt að eyðileggja ritfrelsið með fleiru en ritskoðun. Það er hægt með því að belta nægilega miklum sektum, varðhaldi og fangelsi gagnvart hverjum, sem þorir að segja sannleikann um þá, sem hátt eru settir í þjóðfélaginu. Og það á ekki við fyrir þjóðþing, sem vill viðhalda þessum grundvallarréttindum manna, að setja vitandi vits í löggjöf það, sem a. m. k. mjög mikil hætta er á, að verði misnotað.
Þetta vildi ég sérstaklega segja viðvíkjandi þessum fáu gr., sem við munum freista að bera fram brtt. við. Að öðru leyti vildi ég óska þess, að hv. þm. verði gefinn betri tími til að athuga þessi hegningarl., ekki sízt þar sem það er yfirvofandi, að þessu þingi verði frestað, og mundi þá verða tækifæri til að athuga þetta frv. vel og afgr. svo þessa löggjöf í haust, í stað þess að afgr. þetta stóra mál eins lítt athugað af þm. og það er, á þeim 2–3 dögum, sem nú kunna að vera eftir af þingi, þangað til því verður frestað.