15.12.1939
Neðri deild: 84. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 795 í B-deild Alþingistíðinda. (1499)

29. mál, hegningarlög

Frsm. (Bergur Jónsson) :

Þetta mál kom seint til allshn., á fyrri hluta þessa þings, en allir hv. þm. í n. höfðu þó athugað málið og lögðu sameiginlega til, að frv. yrði samþ. óbreytt. En raddir komu fram hér í hv. d. um það, að ástæða væri til að athuga enn nánar þessa löggjöf, láta hana bíða yfir sumarið og fá til hæfa menn að athuga hana. Mun það hafa orðið að samkomulagi að láta ekki ljúka 3. umr. um málið. Þegar svo málið kom hér aftur til 3. umr., óskaði ég eftir, að n. fengi ráðrúm til að athuga frv. Það hefir hún gert og ber nú fram þrjár brtt. við það.

Fyrsta brtt. er við 108 gr. frv., en þar er talað um, að það varði sektum, varðhaldi eða fangelsi, ef viðhöfð eru skammaryrði eða móðganir eða ærumeiðandi aðdróttanir við opinberan starfsmann, en í síðari málsl. gr. er tekið fram, að aðdróttun sé refsiverð, þó að sönnuð sé, ef hún er borin fram á ótilhlýðilegan hátt. Þetta ákvæði er réttmætt, því að enda þótt aðdróttunin hafi við rök að styðjast, getur hún orðið til þess að trufla mann við skyldustörf hans, trufla helgi þess staðar, þar sem hún er viðhöfð, eða trufla opinber störf. En þar sem hér er aðeins um að ræða aðdróttun, er hefir við rök að styðjast, þykir rétt að láta hana varða sektum aðeins, í stað þess að í frv. segir, að slík aðdróttun skuli vera refsiverð.

2. brtt. er við 236. gr. Sú gr. er í tveim liðum. Fyrri liðurinn er um ærumeiðandi aðdróttun gegn betri vitund, sá síðari um aðdróttun. sem borin er fram opinberlega, enda þótt sá, sem það gerir, hafi ekki haft sennilega ástæðu til að halda hana rétta. Ég tek það fram, að það er aðeins í undantekningartilfellum, að mál eru þannig vaxin, að hægt sé að sanna, að aðdróttun hafi verið borin fram gegn betri vitund. Venjulega er ekki meira hægt að segja en að það sé sennilegt. En með tilliti til síðari málsl., sem mun aðallega verða notaður í framkvæmd, hefir n. lagt til að draga þannig úr refsiákvæðinu, að í stað þess að vísa í fyrri málsl. er ákveðið, að refsingin skuli vera sektir, varðhald eða fangelsi allt að 2 árum, og þarf það þá ekki að vera annaðhvort varðhald eða fangelsi.

Þá er 3. brtt., við 237. gr. Það hefir komið fram í umr., að um þessa gr. hafa flestir hnotið. Mönnum hefir sérstaklegu þótt óeðlilegur síðari helmingur gr., sem hljóðar þannig: „Þegar refsingar er krafizt samkvæmt þessari gr. eingöngu, er ekki heimilt að færa sönnur á aðdróttunin nema nauðsyn þyki bera til vegna almannahags“. N. hefir því borið fram brtt., þar sem gr. er algerlega umorðuð, svo að hún hljóðar þannig: „Ef maður bregður manni brigzlum án nokkurs tilefnis, þá varðar það sektum, þótt hann segi satt“. Má þá aldrei beita nema sektarrefsingum fyrir brigzl, sem í flestum tilfellum er sama og aðdróttanir, nema að öðru leyti sé um að ræða þyngra brot en gr. gerir ráð fyrir. Það skal tekið fram, að hér er um Grágásarorðalag að ræða. Með þessu held ég, að n. hafi tekizt að brjóta af sáran brodd, sem ýmsir, sérstaklega blaðamenn, hafa fundið frv. til foráttu. Hinsvegar hafa ekki komið fram rökstuddar ádeilur á frv. almennt, heldur hefir það verið viðurkennt, að það væri í flestum atriðum til bóta, enda er málið ágætlega undirbúið og l. þau, sem verið er að endurnýja með því, orðin mjög gömul, eða frá 1869. Ég legg því til fyrir n. hönd, að frv. verði samþ. með þessum breytingum.