11.12.1939
Neðri deild: 80. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 799 í B-deild Alþingistíðinda. (1527)

151. mál, ábúðarlög

*Frsm. (Bjarni Ásgeirsson) :

Í 3. gr. núgildandi ábúðarl. er ákvæði um það, að bjóða jarðir til ábúðar með nánari skilyrðum, sem þar eru tilgreind. Nú hefir það reynzt svo í framkvæmdinni, að þessi ákvæði eru að nokkru leyti haldlaus, því ekki eru lögð nein sérstök viðurlög við því, ef jarðir, sem í eyði eru, eru ekki boðnar til ábúðar á tilskyldum tíma. Það getur sem sé verið, að jarðeigandi óski ekki eftir að byggja jörð sína, og þá getur hann sett þá landskuld, sem enginn getur gengið að.

Það hefir komið fyrir á ýmsum stöðum undanfarið, og þá sérstaklega í samhandi við mæðiveikifaraldurinn, að jarðir hafa fallið í eyði, en eigendur jarðanna hafa séð sér hag í því að láta þær vera í eyði áfram. Það er öllum ljóst, að það er mikið áfall, sérstaklega í strjálbýlum sveitum, þegar ein jörð leggst í eyði, því byggð á slíkum jörðum er yfirleitt háð því, að byggð sé á næstu jörðum. Það er bæði smalamennska og annað, sem gerir það að verkum, að svo erfitt er að nytja slíkar jarðir, ef einhver þeirra leggst í eyði. Það er rétt, sem einn maður sagði, að ef jörð á slíkum stöðum fer í eyði, þá er það líkt því að símastaur brotni og taki með sér næstu staura smám saman.

Nú hefir landbn. borið fram till. til tryggingar á þessu ákvæði, svo það sé betur tryggt, að jarðir séu byggðar, með því að setja nokkuð mikil viðurlög við, ef ákvæði l. er ekki fylgt. Ennfremur er gert ráð fyrir, að mat sé látið fara fram á jörðum, ef eigendur þeirra reyna að setja svo hátt gjald á þær, að þær byggjast ekki af þeirri ástæðu.

Ég held ég hafi þá gert nægilega grein fyrir þessu frv. Ég vænti þess, að hv. d. taki því með skilningi. Það er ekki ástæða til að vísa því til n., þar sem það kemur frá n.