30.11.1939
Neðri deild: 72. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 810 í B-deild Alþingistíðinda. (1555)

110. mál, vegalagabreyting

Frsm. (Gísli Sveinsson):

Herra forseti! Frv. því, sem hér um ræðir á þskj. 285, var vísað til samgmn. hv. Nd., og hefir hún orðið sammála um þá afgreiðslu, sem gerð er grein fyrir í nál. á þskj. 343. Þar er lagt til, að 1. gr. frv. orðist svo:

„Síðari málsgr. 24. gr. l. orðist þannig: Bætur fyrir jarðrask og landnám vegna þjóðvegar greiðast úr ríkissjóði og reiknast með kostnaði vegarins.“ En reglan samkv. vegal., nr. 101 frá 19. júní 1933, er sú, að sýslusjóðir bæti allar skemmdir og jarðrask, er hlýzt af lagningu þjóðvega. En eins og kom fram hér í hv. Nd. við 1. umr. þessa frv., eru allmargir þm. þeirrar skoðunar, og samgmn. líka, að ef stíga ætti slíkt spor, að breyta þessu ákvæði vegal., ætti að stíga það til fulls, þannig, að allar bætur fyrir slíkar skemmdir og jarðrask færðust yfir á ríkissjóð. Þetta er sanngjarnt, og ekki þörf á að færa fram frekari rök fyrir því en áður hefir verið gert.

Samgmn. hefir eftir sinni venju borið málið undir vegamálastjóra, og hann skrifaði nefndinni bréf 22. þessa mán., er var á þá leið, að hann teldi sig vera mótfallinn því, að þessi kostnaður færðist yfir á ríkissjóð, en frekar hlynntur því, að skemmra væri gengið, eins og frv. hv. flm. fór fram á. Hann færði þær ástæður fram fyrir sínu máli, að það myndi yfirleitt reynast svo, þegar ákvarðanir yrðu teknar um skaðabætur, að kostnaðurinn af slíkum skemmdum myndi verða vægilegar metinn og auðveldara að greiða, ef viðkomandi hérað væri annarsvegar, heldur en ef allt kæmi á ríkissjóð. Vegamálastjóri hefir fengið skýrslu um þær skemmdir vegna vegalagninga, er metnar hafa verið til skaðabóta, og hafa þær næstum ávallt numið mjög lágum upphæðum. Þeir, sem eru kunnugir málavöxtum, vita, að hér getur ekki verið nema um smáar upphæðir að ræða og tiltölulega sjaldgæfar. Þegar tekið er tillit til þess, hve mikið er lagt af vegum hér á landi, má það teljast hrein undantekning, að greiða þurfi slíkar bætur. En samt. þar sem ranglætið er augsýnilegt. hefir n. viljað. að bótagreiðsla skyldi færast í rétt horf. og þrátt fyrir það, að ummæli vegamálast jóra féllu að nokkru leyti saman við skoðanir hv. flm. frv. leggur þó samgmn. til, að frv. verði samþ. með þessari breyt.