20.12.1939
Efri deild: 89. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 826 í B-deild Alþingistíðinda. (1630)
82. mál, útsvör
*Páll Hermannsson:
Það varð nokkur úlfaþytur hér um daginn yfir því, ef nokkur hluti útsvara þyrfti ekki að greiðast fyrr en í maí árið eftir álagninguna, og nú hefir þessu atriði verið breytt í Nd. — Mér er ljóst, að þessi regla gildir alls ekki hjá þeim mönnum, sem reka atvinnu sjálfir. En þetta mundi hinsvegar þýða dálitla tilhliðrun við fátæka verkamenn, ef greiðslurnar dreifðust meir, og mættu þó bæjarsjóðirnir þakka fyrir, ef það yrði svo í reynd, að öll útsvör væru að fullu greidd í maí. Hinsvegar skal ég geta þess, að mér er þetta ekki það mikið kappsmál, að ég vilji fyrir það hrekja þetta frv. út í Sþ., og af þeim ástæðum mun ég greiða atkv. á móti brtt. hv. 2. landsk. og láta frv. fyrir mitt leyti sitja við þá meðferð, sem það nú hefir fengið.