19.12.1939
Efri deild: 88. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 828 í B-deild Alþingistíðinda. (1647)
124. mál, hafnargerð í Stykkishólmi
Frsm. (Ingvar Pálmason):
Þetta frv. er komið frá Nd., og eins og menn sjá, fer það fram á að skapa þessu kauptúni hafnarlög, en þau eru sniðin eftir þeim hafnarlögum, sem yfirleitt gilda hér á landi.
N. hefir haft frv. til athugunar og borið það saman við hliðstæð hafnarlög og ekkert fundið í frv., sem kemur í bága við þau. Ég held, að það orki ekki tvímælis, að sjútvn. telji mikla nauðsyn á, að hafizt verði handa um þá framkvæmd, sem hér er farið fram á. Hún er þess vegna því fylgjandi, að frv. verði að l., og mælir eindregið með því.