13.12.1939
Efri deild: 83. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 888 í B-deild Alþingistíðinda. (1731)

48. mál, dragnótaveiði í landhelgi

*Frsm. (Ingvar Pálmason) :

Frv. það, sem hér liggur fyrir, er komið frá hv. Nd., og er þar gert ráð fyrir þrem breyt. á l. um dragnótaveiðar í landhelgi. Fyrsta brtt. er um það, að dragnótaveiðar megi ekki byrja eins snemma á vorin og nú er leyft. Í gildandi l. er heimilað að byrja dragnótaveiðar í landhelgi 15. maí við vestur- og suðurströnd landsins, en við norður- og austurströndina er ekki heimilað að byrja dragnótaveiðar í landhelgi fyrr en 15. júní. Þetta frv. gerir ráð fyrir, að sú breyt. verði gerð, að dragnótaveiðar í landhelgi megi hvergi við strendur landsins byrja fyrr en 15. júní.

Í öðru lagi er samkvæmt gildandi l. bannað að veiða innan íslenzkrar landhelgi á skipum, sem eru stærri en 35 smálestir brúttó, fyrr en 30. sept. En 2. brtt. í þessu frv. fer fram á, að dragnótaveiðar á slíkum skipum innan landhelgi verði bannaðar allt árið.

Svo er loks þriðja brtt., sem er um það, að ákvæðum gildandi l. um lengd dráttarlína og möskvastærð verði breytt.

Ég vil geta þess, að ástæðan til fyrstu brtt. er sú, að þegar ákvæðin um, hvenær dragnótaveiðar í landhelgi mættu byrja, voru sett í l., var það álit vísindamanna, að ég hygg, að dragnótaveiðar við suður- og vesturströnd landsins mættu byrja mánuði fyrr en við norður- og austurströndina, af þeirri ástæðu, að hrygningartími kolans, sem aðallega er veiddur í dragnætur, væri mánuði fyrr við Suðurland en við Norður- og Austurland. og studdist sú kenning við sjávarhitann. Nú hefir reynslan sýnt, að það er langt frá því, að kolinn sé úthrygndur um 15. maí við suður- og vesturströnd landsins, og það hafa orðið svo mikil brögð að því, að óhrygndur koli hafi veiðzt í dragnætur, að sá fiskur hefir fallið mjög í verði af þeirri ástæðu, og ég hygg, að sanngjarnt sé að leyfa slíka veiði ekki fyrr en 15. júní. En þá ber á hitt að líta, að sú breyt. kemur í nokkrum tilfellum hart niður á þeim, sem hafa stundað kolaveiðar með dragnótum við suður- og vesturströndina undanfarin ár, vegna þess að mjög margir þeirra fiskimanna hafa báta, sem ganga á þorskveiðar á vetrarvertiðinni, en henni er venjulega lokið um 11. maí, og þeir sömu bátar stunda einnig síldveiðar fyrir Norðurlandi yfir síldveiðitímann. Ef nú verður ekki leyft að stunda kolaveiðar fyrr en 15. júní, verður það til þess, að þessir bátar geta ekki stundað veiðar hér á tímabilinu milli vetrarvertíðar og síldarvertíðar, nema þá aðeins að stunda þær einvörðungu utan landhelgi, og það er talið, að það sé mjög miklum erfiðleikum bundið að láta kolaveiðarnar bera sig, ef þær eru einvörðungu stundaðar utan landhelgi. Á þetta ber einnig að líta, og sjútvn. hefir athugað þetta atriði allgaumgæfilega, og leggur n. til, að samþ. verði, að kolaveiðar megi byrja 1. júní.

Það eru 2 ástæður fyrir því, að n. leggur þetta til. Fyrri ástæðan virðist vera nokkuð viðsjárverð, að því leyti að loka landhelginni til 15. júní, til þess að veiðiskapur leggist niður hjá öllum fjölda af þeim bátum, sem Íslendingar gera út. Á það ber að líta, að oft hefir verið reynt að veiða í landhelgi og orðið til skaðskemmda án þess að nokkuð hafi veiðzt. Þó að þetta sé ekki fullkomin þekking á lifnaðarháttum og lífsskilyrðum kolans, hefir það sýnt sig, að þeir menn, sem þessum málum eiga að vera kunnugastir, hafa ekki réttar niðurstöður. Heilbrigð skynsemi manna sýnir þeim fram á, að það er nokkuð mismunandi og geta verið áraskipti að því, hvar kolinn gengur. N. lítur svo á, að reynandi væri að færa tímann aftur til baka, þannig að heimildin til að veiða megi byrja 1. júní. En ástæðan er sú, að það er ákaflega óþægilegt, að landhelgin skuli vera opnuð á mismunandi tímum. Sannleikurinn er sá, að þessi svæði, sem opnuð eru 15. maí, liggja að svæðum, sem opnuð eru 15. júní. Ég held, að ef þessu er á annað borð breytt til hagsbóta fyrir þá, sem stunda veiði sunnanlands, verði að hafa allan tímann til 1. júní. Ég held, eins og ég benti áðan á, að það sé erfitt að ákveða eftir vissum mánaðardegi, hvar kolinn er, frekar eftir árferði. Ég álít því skynsamlegt að gera þá breyt., sem n. leggur til, að opna landhelgina 1. júní. — Að öðru leyti sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um frv. eins og það kom frá 1d. Hinsvegar kann að vera, að meðnm. mínir hafi fleiri aths. fram að færa. En um þessa breyt. vorum við sammála, að 1. júní komi í stað 15. maí.

Þá er þess að geta, að fyrir þinginu hefir legið síðan frá fyrri hl. þessa þings, frv. til l. um breyt. á dragnótalögunum. Var sú breyt. flutt af hv. 11. landsk. og mér. Þessi brtt. hefir legið hér hjá sjútvn. allan tímann, vegna þess að n. taldi rétt að láta hana bíða eftir þessu frv. frá Nd. Nú hefir n. tekið upp aðalefni þeirra brtt., sem í frv. fólust. Í frv. er gert ráð fyrir, að löggilt hafnarsvæði verði friðuð allt árið. En meiri hl. n. fannst hér of langt gengið, að bæjarstjórnir gætu friðað svæði. Ég held, að víða hagi svo til hér á landi, að þetta sé sjálfsögð ráðstöfun. Það er til lítilla nytja, að verið sé að skrölta með þessum veiðarfærum inni á höfnum, til óþurftar fyrir þá, sem við höfnina búa. Ég held, að þessar till. fari hóflega í sakirnar með því að gera ráð fyrir, að svo hagi til, þar sem löglegar hafnir eru, að leggja megi þetta undir vald viðkomandi stjórnarvalda. Annars vil ég geta þess, að Íslendingum er mikið áhugamál að fá meiri friðun fyrir fiskistofn sinn. Það hefir verið mikið unnið að því að koma á friðun Faxaflóa, en yfirleitt þyrftum við að sinna, miklu meira en við gerum, uppeldismálum nytjafiska vorra. Ef við erum einhuga um að friða Faxaflóa, þá er áreiðanlegt, að við verðum að taka upp almenna friðun fyrir dragnót. Ég skal játa, að eins og tímarnir eru nú, er þetta mál ekki tímabært. Samt sem áður ættum við að sníða okkur löggjöf með það fyrir augum, að framundan sé það, að afnema allar dragnótaveiðar í landhelgi. Ég sé ekki ástæðu til að fara frekar út í þetta; n., sem þetta mál hafði til meðferðar, hefir leyst það á þann hátt, sem hún taldi æskilegastan.