25.11.1939
Neðri deild: 68. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 908 í B-deild Alþingistíðinda. (1804)

126. mál, friðun hreindýra

*Pétur Halldórsson:

Það er mjög ánægjulegt, að þetta frv. skuli vera komið hér fram, og ég vil veita því fylgi. Tvö atriði vildi ég benda á, sem betur mættu fara. Í 4. gr. er svo ákveðið, að sektir fyrir friðunarbrot skuli hálfar falla til uppljóstrunarmanns. Mér finnst, að yfirleift ætti að fara út af þeirri braut í löggjöf. Hitt er smáatriði. Í 1. gr. segir, að hreindýr skuli „friðuð fyrir skotum og öðrum veiðivélum“, eins og skot væru vélar. Það geta þau ekki heitið, nema meiningin eigi kannske að vera: vélræði. Þetta ætti að athuga í nefnd.