11.04.1939
Efri deild: 37. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 71 í B-deild Alþingistíðinda. (188)
28. mál, dýralæknar
Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):
Frv. þetta er í raun og veru ekki annað en dálítil breyting á þeim lögum. sem hingað til hafa gilt um dýralækna, bæði frá 1915 og 1933. Aðalbreytingin er sú, að hér eftir skuli dýralæknar vera sex í stað fimm, og bætist þá við dýralæknir á Vestfjörðum. Samkv. 2. gr. mun atvinnumálaráðuneytið setja gjaldskrá fyrir störf og ferðir dýralækna, en áður hafa engin ákvæði verið um það. Þá er í 3. gr. gert ráð fyrir að hækka dagpeninga dýralækna, þegar þeir ferðast í þágu hins opinbera, úr 5 kr. í 6 kr. á dag.
Þetta frv. er búið að ganga gegnum neðri deild, án þess að á því hafi orðið breytingar. Hér í Ed. hefir landbn. orðið sammála um að leggja til að staðfesta frv. óbreytt, nema með þeirri viðbót í 1. gr., að í stað orðanna: „fyrirmælum 3. gr.“ komi: fyrirmælum síðari málsgr. 3. gr. En sú málsgrein segir, að ferðakostnaður dýralækna skuli endurgoldinn eftir l. um aukatekjur og ferðakostnað ýmissa embættismanna, þar sem tekið er fram, að hann skuli greiddur eftir sundurliðuðum reikningi.
Þó að mér þyki nokkur ástæða til að gera fleiri breytingar á þessu frv., þá hefi ég horfið frá því. Það er mikill munur fyrir Vestfirði alla og jafnvel Strandasýslu að fá dýralækni, sem sumir hafa hugsað sér, að sæti á Ísafirði, í stað þess að verða að sækja alveg á mörk fjórðungsins til læknis, sem dvelur í Borgarnesi. En þó að sú bót sé komin, eru allir Breiðfirðingar illa settir, og ég tel varla viðunandi fyrir þá að sækja vestur á Ísafjörð eða þá í Borgarnes. Ég vil fyrir mitt leyti vonast til þess, að hæstv. ríkisstjórn taki fullt tillit til þessa, er hún ákveður fasta bústaði fyrir dýralækna í Vestfirðingafjórðungi.