22.12.1939
Neðri deild: 90. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 947 í B-deild Alþingistíðinda. (1906)

130. mál, lögreglumenn

*Forsrh. (Hermann Jónasson) :

Rök mín, sem ég bar fram áðan, eru nægilega skýr til þess, að menn geti tekið þau til greina. Það mun ekki vekja traust á rökræðum hv. síðasta ræðumanns, þegar hann heldur því fram, að dómsmrh. muni ekki og hafi ekki farið eftir dómum, heldur muni hann nota lögregluna til að brjóta gegn dómum í landinu, og sjá menn af því, til hvers er að vera að rökræða við slíkan þm. Hann brá fyrir sig þeim varnagla, sem hann hefir haft í blöðum sínum undanfarið, að hann hefði ekki mikla trú á félagsdómi, enda kom það líka í ljós strax og þessi dómur var samþ.

Viðvíkjandi Hafnarfjarðardeilunni, þá hefi ég aldrei skipt mér af eða leiðrétt það, sem hann hefir sagt, en ég hefi enga dul dregið á það, sem ég þá sagði við hv. þm. um það mál á sínum tíma, í símtali, og ef ekki nægir, að ég vísi því til þeirra þm., sem sæti eiga í d., þá getur hv. þm. snúið sér til Björns Blöndals og spurt hann. En ég sé enga ástæðu til að vera að mótmæla þessu, því að mér er alveg sama, hvaða álit hv. þm. hefir á mér.