15.12.1939
Efri deild: 85. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 961 í B-deild Alþingistíðinda. (1923)
149. mál, héraðsskólar
*Árni Jónsson:
Ég vil þakka hv. 5. landsk. fyrir undirtektir hans undir þá till., sem ég flyt. Hann er einn þeirra, sem sæti eiga í fjvn., sem nú hefir gerzt mjög umsvifamikil á þessu þingi, einkum um sparnað, m. a. hjá ýmsum opinberum stofnunum. En það má heita, að þessir skólar séu það; og hér er ekki lagður til sparnaður af ríkisins hálfu.
Hv. þm. S.-Þ., sem ber fram þetta frv., hefir látið mjög ítarlega grg. fylgja því. Mér finnst, að þessi hv. þm. sé þar ekki í fullu samræmi við stefnu sína. Ég vil ekki fallast á, að rétt sé að fara nú að auka byrðar ríkissjóðs. Mér finnst þetta frv. ekki vera í fullu samræmi við stefnu hv. þm. S.-Þ. eins og hún kemur fram í „höggorminum“ og ýmsu öðru, því að mér virðist ekki nauðsynlegt að leggja þær nýju byrðar á ríkissjóð, sem þar er farið fram á.
Hv. þm. S.-Þ. sagði, að þegar l. um héraðsskóla voru sett, hefði verið sterkur áhugi fyrir því í sveitum landsins, að þessir skólar kæmust á fót. Mér skildist helzt, að hann vildi fóðra þessar auknu kröfur á hendur ríkissjóði með þeirri linku í stefnunni, að áhuginn fyrir þeim sé nú minni í sveitunum en áður. (JJ: Nei nei.) Ég get ekki með neinum rökum komizt að annari niðurstöðu. En eins og ég gat um í fyrri ræðu minni, þá liggur ekkert fyrir, er bendi til, að svo sé. Mér skildist á honum sjálfum, ekki síður en fræðslumálastjóra, að áhuginn væri mikill fyrir þessari breyt., og það myndi sízt verða til þess að draga úr aðsókn að héraðsskólunum, ef þessi breyt. kemst á. Mér fannst það koma ljóst fram í seinni ræðu hv. þm. S.-Þ., að þetta væri ekki síður frv. um sumargistihús heldur en frv. um héraðsskóla. (JJ: Já, það er alveg rétt.) Mér fannst það augljóst, að hér var um frv. um sumargistihús að ræða, því að öll ræða þessa hv. þm. fjallaði um það, að bæta yrði aðbúnað héraðsskólanna, en þó átti ekki að miða þær umbætur við þarfir nemenda, heldur við þarfir þeirra ferðamanna, sem hingað sækja. Hann ræddi mikið um það, hve sumir ferðamenn hefðu orðið að sætta sig við slæman aðbúnað. En þá ræðu flutti hann í fyrravor í sambandi við skip Eimskipafélagsins, um Englendinginn, sem aldrei gat fengið nógu langt rúm og alltaf þurfti að, hringa sig á gólfinu. Ég hefi orðið fyrir þessu sama. Þegar ég var einu sinni faktor á Vopnafirði, eins og hv. þm. S.-Þ. hefir getið um, góðrar minningar, þá kom til mín gamall karl, sem var kallaður Ólafur þögli. Hann átti dóttur eina þarna, og ætlaði að gefa henni efni í sængurver. Ég spurði hann, hvað þann þyrfti mikið. „Svo sem tvær álnir,“ svaraði hann. „Nei,“ það er allt of lítið,“ sagði ég, „þér veitir ekki af 8–10 álnum.“ „Nei,“ sagði hann, „tvær álnir eru alveg nóg, hún getur þá legið kreppt.“ Það er þetta, sem hv. þm. S.-Þ. vill koma í veg fyrir, að ferðamenn þurfi að verða fyrir, og ég er alveg með honum í því. En með því fyrirkomulagi, sem farið er fram á í þessu frv., sem sé að auka verklega kennslu í héraðsskólunum, þá virðist mér vera séð sæmilega vel fyrir því, að hægt sé að búa til sæmilega góð rúm, sem séu nógu löng handa flestum hóflega stórum ferðamönnum. Ég býst ekki við, að hann ætlist til þess, að þau séu hótel fyrir „luxus“-flakkara, heldur þægileg gistihús, sem aðeins séu rekin á sumrin. Eins og hann gat um og mér er kunnugt, hefir verið sem mikið gert að smíðum á Laugaskólanum, að maður getur ferðazt víða þar um sýsluna, þar sem maður sér ekki annað en heimaunnin húsgögn, sem eru mjög smekkleg. Einkum á þetta við um sveitaheimilin kringum Laugaskóla, og sjálfsagt eru þau húsgögn sízt lakari, heldur sterkari og varanlegri en erlend húsgögn. Með þeim breyt., sem lagt er til að gerðar verði á héraðsskólunum með þessu frv., skilst mér, að yfirleitt verði séð fyrir því, að hægt verði að hýsa þar alla yfir sumartímann nema „luxus“flakkara, með örlitlum tilkostnaði.
Ég hygg, eftir því, sem fræðslumálastjóri segir, að þá sé áhuginn óbilaður fyrir því í sveitum landsins að styrkja héraðsskólana, og ég vona, að svo sé. Ég sé enga ástæðu til að gera ráð fyrir þeirri linku, að þeir, sem að skólunum standa, muni ekki framvegis standa undir sínum skuldbindingum, eins og þeir hafa gert undanfarin ár. Hv. þm. S.-Þ. ræddi ekki um þetta sem skólamál, heldur gistihúsamál. En einmitt á þessum tímum, þegar verið er að bera fram frv. um sérstakar ráðstafanir vegna styrjaldarástands, og um að fresta framkvæmd ýmsra l. vegna stríðsins, sem nú geisar, tel ég að ekki hefði verið síður ástæða til að fresta því að setja l. um sumargistihús sveitanna, því að ein afleiðing þeirra l., ef samþ. verða, verður vitanlega sú, eins og tekið er fram í nál., að um leið og ferðamannastraumur frá útlöndum fer aftur að aukast, verður farið að nota héraðsskólana sem sumargistihús. Ég sé enga ástæðu til að halda þessu máli til streitu nú, því að þörf ferðamanna gefur enga ástæðu til þess, því að með gistihúsrekstrinum er ekki verið að leggja neina kvöð á skólana. (JJ: Þeir
gera það nú eiginlega af sjálfsskyldu). Það getur vel verið að það þurfi að styrkja gistihús í sumum héruðum, en það mál liggur ekki fyrir hér nú. Hv. þm. S.-Þ. kom með það, hvaða ástæða væri fyrir Árnessýslu að vera að sjá Reykvíkingum fyrir sumargistihúsi. En hann hefir sjálfur upplýst, að það hafi gefið arð. Hann sagði, að það hefði orðið 10 þús. kr. hagnaður af rekstri gistihússins á Laugarvatni árlega, og það er ekki lítið, að hafa þarna 10 þús. kr. afgang á hverju sumri.
Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta öllu meira. Ég vil þá aðeins benda á það, að eins og nú er, hafa skólarnir sjálfir getað lagt fram helming stofnkostnaðar, og með þessu frv., ef samþ. verður, er miklu betur séð fyrir skólunum fjárhagslega, ef þeir eru haganlega reknir. Ég tel það ganga of langt, ef nú á að fara að létta miklu meiru af héraðsskólunum en áður.
Þrátt fyrir það, þó að sveitirnar eigi við ýmsa örðugleika að stríða, eru samt alltaf að koma fram kröfur um nýja héraðsskóla, og mér virðist ekkert benda til þess, að sveitunum eigi ekki að vera fært framvegis að standa undir sínum héraðsskólum eins og hingað til, og tel ég, að með þessu frv. sé gert ráð fyrir meiri linku heldur en nokkur ástæða er til.