14.04.1939
Efri deild: 39. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1018 í B-deild Alþingistíðinda. (2003)

22. mál, tollskrá

*Erlendur Þorsteinsson:

Herra forseti! Þær brtt., sem hér liggja fyrir frá fjhn. á þskj. 139, eru eingöngu brtt., sem allir nm. voru sammála um. Hinsvegar eru, eins og tekið er fram í grg. frv. á þskj. 24, einnig til brtt. við frv., sem einstakir nm. standa að. Ég hefi hér tilbúnar nokkrar brtt. við þetta frv., en þar sem hv. form. fjhn. og hæstv. fjmrh. mæltust mjög til þess, að þetta frv. yrði tekið til 3. umr. og form. fjhn. gaf loforð um, að fjhn. héldi fundi milli 2. og 3. umr. þessa frv., taldi ég ekki rétt að koma með brtt. mínar núna, heldur bíða þar til þær hafðu verið lagðar fyrir fjhn., og sjá, hvort ekki fengist samkomulag í n. um þær.

Hv. 1. landsk. hefir komið með nokkrar brtt. við þetta frv. á þskj. 144, og nokkrar af mínum brtt. fara nokkurnveginn í sömu átt sem brtt. hans. Ég vildi mælast til þess, að hann tæki sínar brtt. aftur til 3. umr. þessa frv.

Ég held að ég hafi ekki ástæðu til þess á þessu stigi málsins að fara nánar út í þær brtt., sem fjhn. hefir gert við þetta frv. frá þeirri mynd, sem það var afgr. í frá mþn. í skatta- og tollamálum. Ég mun geyma mér þann rétt, að ræða frv. frekar, til 3. umr. þess, og þá munu þær brtt. koma til umr., sem ég hefi nú minnzt á.