16.12.1939
Efri deild: 86. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1056 í B-deild Alþingistíðinda. (2068)

131. mál, dómsmálastörf, lögreglustjórn, gjaldheimta o. fl. í Reykjavík

*Jónas Jónsson:

Ég ætla aðeins að bæta örfáum orðum við það, sem meðflm. minn um þessa till. sagði um þetta atriði, sem hæstv. forsrh. minntist nú á.

Það, sem vakir fyrir okkur, sem flutt höfum þessa till., er, að eftir þessum l. verði nokkrir fulltrúar hjá þessum embættismönnum í Rvík. sem gegni setudómarastörfum úti á landi. Eins og menn vita, þá hvílir sú skylda á sýslumönnum að vera setudómarar í öðrum héruðum með þeim kjörum, sem hér er talað um. Það hefir komið fyrir, að þessir starfsmenn í Rvík hafi verið setudómarar, og það jafnvel yfir lengri tíma, án þess að þurft hafi að taka menn í þeirra stað. Þetta hefir oft orðið mikill útgjaldaliður fyrir ríkissjóðinn. Við álítum þess vegna rétt, að setja þessa menn ekki hærra en sýslumenn og gera ráð fyrir, að þeir gegni setudómarastörfum án þess að fá sérstök laun fyrir.

Ég vil benda hæstv. ráðh. á, að þetta er hliðstætt því, þegar ætlazt er til, að lögreglan í bæjunum sé flutt til eftir þörfum. Hér er um aukna hreyfingu að ræða, og ég geri ráð fyrir, að þetta geti orðið til ánægju, þegar þetta er komið á.