18.04.1939
Neðri deild: 43. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 76 í B-deild Alþingistíðinda. (207)

46. mál, vátryggingarfélög fyrir vélbáta

*Sigurður Kristjánsson:

Það er misskilningur hjá hv. þm. Borgf., að ég hafi haldið því fram, að vátryggingarfélögunum stafaði hætta af þessum ákvæðum. Ég hélt því þvert á móti fram, að þau gætu „sikkrað“ sig með háum iðgjöldum. Það eru hinsvegar mennirnir, sem eiga nýja velbúna báta, sem þetta ákvæði mun koma niður á í allt of háum iðgjöldum, sem ég álít, að myndi útiloka þá frá því að tryggja, því að ef tryggingarfélögin væru skyld til að tryggja, þá myndu þau miða iðgjöldin við lökustu bátana, sem þannig yrðu píndir inn í trygginguna. Ég er þess vegna að flytja þessa till. einmitt með tilliti til bátaeigenda, til þess að reyna að tryggja, að þeim verði ekki gert ófært að tryggja. Ég álit, að þó að flm. frv. hafi í upphafi talið nauðsynlegt að hafa þetta skylduákvæði, þá megi þeir, að athuguðu máli og fengnum upplýsingum, ekki vera svona fastheldnir við frv. í sínu upprunalega formi. Þeim hlýtur að vera leiðbeining í þeim bendingum og ráðleggingum, sem komið hafa frá tryggingarstjóranum, hr. Finsen, þegar það er vitað, að hann gefur þær ekki til hagsmuna fyrir tryggingarfélögin, því að þau geta alltaf séð sínum hag borgið. Ég held því, að það sé þess vert fyrir flm. frv. að gefa gaum að orðum slíkra kunnáttumanna.