27.12.1939
Neðri deild: 94. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1060 í B-deild Alþingistíðinda. (2080)

131. mál, dómsmálastörf, lögreglustjórn, gjaldheimta o. fl. í Reykjavík

*Forsrh. (Hermann Jónasson) :

Þessi breyt., sem hér hefir verið rætt um að gera á frv., er þannig, að ég get fellt mig við hana. Þó álít ég, að hún sé ekki til bóta. Þetta ákvæði í frv., eins og það var lagt fyrir Ed., var í l. frá 1928. Það var ekkert ákvæði í þeim l. um það, að þeir menn, sem skipa þessi embætti, þurfi að hafa lögfræðipróf. Viðvíkjandi tveimur embættunum, sakadómara- og lögmannsembættinu, þá leiðir það af öðrum l., að þeir verða að hafa þetta próf. viðvíkjandi tollstjóra- og lögreglustjóraembættinu, eins og þau verða, ef þetta frv. verður að l., gegnir nokkuð öðru máli. Þess vegna var þetta ákvæði í frv. borið fram eins og það var í l. frá 1928. Það getur vel verið, að hægt sé að finna hæfari mann í tollstjóraembættið, sem ekki er lögfræðingur, heldur en mann með því prófl. Ég get vel hugsað mér, að til væru þeir menn, sem hefðu svo góða menntun og væru að öðru leyti svo vel hæfir, að það eitt út af fyrir sig ætti ekki að vera afgerandi, hvort þeir hefðu lögfræðipróf. Ég held því, að þetta ætti að vera óbundið. Hann þarf að vísu einstaka sinnum að kveða upp úrskurði um það, hvernig beri að skilja tollalögin, en um slíkt getur hann vel myndað sér skoðanir, þó hann hafi ekki lögfræðipróf.

Mér finnst ósköp eðlilegt, að þessi stétt manna, lögfræðingarnir, vilji gera þessa kröfu, til þess að tryggja það, að þetta embætti verði veitt lögfræðing. Því er ekki heldur að neita, að það er verulegur ávinningur fyrir mann, sem gegnir þessu starfi, að vera lögfræðingur. Ég álit samt eðlilegra, að þetta sé óbundið.

Viðvíkjandi hinu atriðinu, um lögreglustjórann, þá er það starf þannig, ef frv. verður að l., að ekkert er í því starfi, sem er lögfræðilegs eðlis. Það er löggæzlan, sem er skilin eftir, en dómsvaldið er flutt til sakadómarans. Það, sem var af lögfræði viðvíkjandi starfi lögreglustjóra, er þannig flutt yfir til sakadómarans. Það er þess vegna ekki gefið, heldur langt frá því, að sá heppilegasti maður, sem hægt er að fá í það embætti, sé maður, sem hefir lögfræðipróf.

Nú hefir verið borin fram sú fyrirspurn, hvort ég myndi ekki sem ráðh. veita manni með lögfræðiprófi þetta starf. Það þýðir ekkert að draga dul á það, að þegar á að fá mann í slíka stöðu, þá verður að fá mann til þess að undirbúa sig undir að taka þetta starf að sér. Sannleikurinn er líka sá, að lögreglustjóraembættið er ekki sérlega vel launað. Þegar ég tók við því starfi, þá var það vegna þess, að það var umfangsmikið starf og skemmtilegt starf fyrir þann, sem hafði ánægju af að byggja það upp. Það var þó þannig, að ég taldi mig frekar hafa óhag af að taka við því. Það er líka þannig með marga lögfræðinga, sem eru þekktir og reyndir, að þeir eru venjulega komnir inn í aðrar greinar, sem eru þessu starfi ekki nægilega skyldar. Reynslan er sú, að það þarf að láta menn búa sig undir slíkt starf, og ef ég á að fara að gefa upplýsingar um þetta hér á Alþ., þá getur það ekki orðið nema á þann veg, að slíkar ráðstafanir hafi þegar verið gerðar.

Ég hygg, að reynslan myndi verða sú, að þó leitað væri meðal þeirra málafærslumanna í þessum bæ, sem unnið hafa sér nafn, þá myndi enginn þeirra vilja taka að sér þetta starf, því þeir eru við störf, sem þeir álíta betri og eru tekjumeiri.

Ég álít þess vegna, að þetta eigi að vera óbundið, enda er það í samræmi við þær ráðstafanir, sem þegar hafa verið gerðar í þessu máli.