15.12.1939
Neðri deild: 84. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1075 í B-deild Alþingistíðinda. (2125)
150. mál, ríkisborgararéttur
*Forsrh. (Hermann Jónasson) :
Ég get ekki neitað því, að sjónarmið n., sem kemur fram í ræðu hv. þm. Barð., er alveg rétt, og það er líka rétt, að ég beitti mér fyrir samþykkt þeirra l., er nú gilda um þetta efni, en það gerði ég vegna reynslu minnar sem lögreglustjóri í Reykjavík. Það hafði komið mikið af útlendingum inn í landið án þess að um það giltu nokkrar fastar reglur, hverja við tókum og gerðum að ríkisborgurum hér. Þess vegna játa ég fyllilega, að frá almennu sjónarmiði er afstaða n. rétt, En vitanlega voru þessi l. fyrst og fremst sett til þess að vernda íslenzka hagsmuni, og ef það eru hagsmunir Íslands, að vikið sé frá hinum ströngustu skilyrðum l. í einstökum tilfellum, þá fel ég, að það sé réttlætanlegt. Nú neita ég því hinsvegar ekki — og ég veit, að hv. þm. Barð. talar þar af reynslu —, að ef gerðar eru undantekningar frá reglu, þá verður undantekningin að reglu. En ástæðan til þess að ég tek hér til máls, er sú, að framkvæmdastjórn rafveitunnar á Blönduósi, Jónatan Líndal, Steingrímur Davíðsson og Pétur Theódórs, hefir ritað mér bréf, og fært fram ýmsar ástæður fyrir því, að rétt sé að veita þessum manni ríkisborgararétt. Þessar ástæður eru aðallega fjórar: 1) Að maðurinn hafi reynzt ágætlega við sitt starf, og þess vegna alveg sérstök áherzla lögð á það nú á stríðstímum, þegar erfitt er að fá nýja vélahluti, að þessi maður, sem er vélasamstæðunum þaulkunnugur, geti haldið áfram gæzlu þeirra. vélarnar kosta um 80–90 þús. kr., og er talið hætt við, ef nýr maður tæki við gæzlunni, að eitthvað færi verr úr hendi hjá honum heldur en þessum manni. Hann hefir verið síðan rafmagnsveitan tók til starfa og hefir reynzt sérstaklega vel. Þetta eitt út af fyrir sig eru nokkuð sterk og sérstæð rök. — Í annan stað eru þeir hræddir um það, að nú geti svo farið, að vegna þess að ófriður geisar í Norðurálfu og skandinavísku þjóðirnar eru að búa sig undir það, að sá ófriður geti færzt nær þeim, þá megi búast við, að þessi maður verði kallaður til herþjónustu, ef hann fær ekki ríkisborgararétt nú. Þetta er líka sérstök ástæða. — Í þriðja lagi gera þeir ekki ráð fyrir að geta fengið hæfan mann íslenzkan til starfsins, en ég fullyrði ekki, að sú staðhæfing sé rétt. Mér skilst, að fyrir liggi hjá n. bréf frá rafvirkjum um, að hægt sé að fá mann til þessa starfs, en það gerir ekki að engu þá röksemd, að þeir geti ekki fengið mann, sem er tryggur, því þeir bera fram aftur á móti, að síðastl. vor hafi Jakob Gíslason skýrt þeim frá því, að það væri enginn maður til nú, sem ótvírætt væri treystandi. — Í fjórða lagi þarf að gera spennubreyt. á stöðinni nú í vor, og þeir gera ráð fyrir, að þessi maður hafi rétt til að framkvæma þessa breyt.,en gera ekki ráð fyrir, að það sé til laus maður, sem þeir geti fengið til að framkvæma þetta verk, ef þessi maður er frá þeim tekinn. Nú mun ekki vera hægt að breyta því, sem líka var tekið fram af frsm. n., að þegar talað er um það í lögunum, að þeir menn, sem hafa unnið 10 ár hjá ríkinu, geti fengið ríkisborgararétt, ef önnur skilyrði eru fyrir hendi, þá mælir margt með því, enda þótt á lögunum sé ekki hægt að sjá annað en að eingöngu sé átt við ríkisstofnanir, að þetta sé einnig látið gilda um bæjarfélög. Og mér finnst, að þegar maðurinn hefir verið hér á landi í 10 ár í vor og svona sérstakar ástæður eru fyrir hendi, að tæplega vera hægt að líta svo á, að þær reglur, sem ríkið hefir sett um 10 ára búsetu, séu brotnar, þótt þessi maður fái rétt samkv. lögunum. Tíminn er örstuttur og líkur til, að hann verði búinn að vera 10 ár, þegar lögin ganga í gildi, og þessar sérstöku ástæður vegna ófriðarins, sem gera það því ólíklegra, að nokkurn tíma standi þannig á um undantekningu eins og stendur á um undantekningu fyrir þennan mann. Þess vegna er ég því frekar meðmæltur, að þessi maður fái ríkisborgararétt, þó ég gangi algerlega inn á rök n. og vilji á engan hátt ganga gegn þeim, því það eru þau rök, sem ég færði hér fram þegar lögin voru sett, en mér virðist ekki, að þessi undantekning geti verið hættuleg fyrir lögin eða að hún geti skapað nokkurt fordæmi, því mér þykir ólíklegt, að það komi nokkur dæmi, sem yrði svona sérstæð.
Ég mæli því með því, að þessi maður fái ríkisborgararétt samkv. beiðni framkvæmdastjórnar rafstöðvar Vestur-Húnavatnssýslu í bréfi því, sem ég minntist á.