22.12.1939
Efri deild: 91. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1091 í B-deild Alþingistíðinda. (2205)
165. mál, rannsóknarstofnun í þarfir atvinnuveganna
*Frsm. (Bernharð Stefánsson):
Þeim ummælum hv. 10. landsk., að þessi mál hafi ekki verið rannsökuð í fjhn., vil ég mótmæla. Ég veit ekki betur en þau hafi verið til meðferðar á tveim fundum í n., og þá ætla ég, að öllum sé það kunnugt, að þessi mál hafa verið til sérstakrar athugunar innan hv. ríkisstj. Og maður skyldi þá ætla, að ríkisstj., sem skipuð er fimm ráðh. úr þrem stærstu þingflokkunum, væri eins fær um að athuga málið eins og þingn. Þótt ég játi, að athugun fjhn. á þessu máli hafi ekki verið sérstaklega nákvæm, án þess þó að kannast við, að hún hafi engin verið, — þá vil ég ekki játa það, að nefndarmenn sem einstakir þm. hafi ekki haft fyllsta tækifæri til þess að athuga málið hver í sínum flokki, þar sem þessi mál hafa hvað eftir annað verið rædd á flokksfundum þeirra.