04.12.1939
Neðri deild: 74. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1095 í B-deild Alþingistíðinda. (2241)

143. mál, síldarverksmiðja á Raufarhöfn o. fl.

*Atvmrh. (Ólafur Thors) :

Með þessu frv. er farið fram á, að heimilað verði að reisa á Raufarhöfn síldarverksmiðju með 5 þús. mála afköstum á sólarhring, og ennfremur að stækka síldarverksmiðjur ríkisins á Siglufirði svo, að afköstin aukist um 1500 mál síldar á sólarhring, auk þeirra 2400, sem heimilað er að auka þar við með l. nr. 10 13. jan. 1938. Til þessara framkvæmda er ríkisstj. heimilað að taka lán fyrir hönd ríkissjóðs, að upphæð allt að 1700 þús. kr., til viðbótar þeirri 1½ milljón kr., sem heimilað var að taka í l. frá 1938.

Ástæður til þessa frv. eru raktar í grg., svo að ég get leyft mér að stikla aðeins á því stærsta. Samkv. nefndum l. frá 1938 var þegar í byrjun þess árs útvegað 27 þús. £ lán í Englandi til þeirrar 2400 mála stækkunar, sem lögin ráðgerðu á Siglufirði. Framkvæmd var þegar hafin og lokið fyrir byrjun síldarvertíðar 1938. Kostaði það verk liðugar 600 þús. kr. Hinsvegar hefir ekki enn farið fram sú verksmiðjubygging, sem frv. ráðgerði á Raufarhöfn. Það stafar sumpart af því, að í ársbyrjun 1938 þótti nokkuð seint að ráðast í verkið til þess, að það kæmi að gagni á síldarvertíð þess árs. En síðan var lántökuheimildin til verksmiðjunnar felld inn í heimild til 12 millj. kr. lántöku, sem ekki hefir orðið úr.

Þótt þessi stækkun hafi farið fram á Siglufirði, hefir mönnum síðan orðið ljóst, að ekki sé vanþörf á að hrinda í framkvæmd báðum þeim stækkunum, sem 1 gr. þessa frv. ræðir um. Það er eins og hv. þm. vita, að slíkar stækkanir geta ekki farið fram án samþykkis Alþingis. Ríkisstj. hefir samt sem áður leyft sér að gera í þá átt ýmsar ráðstafanir, sem þó má losa út úr, ef vilji þingsins reynist annar, án þess að nokkur skaði falli á ríkisverksmiðjurnar. En að ríkisstj. greip til þessara úrræða án þess að spyrja Alþ., stafaði af því, að á síðastl. sumri þótti einsýnt, að þá þegar yrði að hefjast handa um framkvæmdir í þessu efni, ef ekki ætti að verða veruleg, hætta á því, að þetta nauðsynjaverk myndi dragast úr hömlu. Því fremur þótti ástæða til að hverfa að þessu ráði, þar sem ástandið í alheimsmálunum var mjög ískyggilegt og ríkisstj. þóttist sjá fram á, að ef voðinn skylli yfir, sem nú raunar hefir skollið yfir, þá myndi verða verðhækkun á aðkeyptu efni, sem til framkvæmdanna þyrfti. En ríkisstj. taldi sig fremur mega hefja þessar ráðstafanir fyrir það, þó hún hefði ekki stuðning Alþ. fyrir því að forminu til, að henni höfðu áður borizt umsagnir frá miðstjórn Sjálfstfl. og einnig frá miðstjórn Alþfl. um það, að þær hefðu fyrir sitt leyti skuldbundið sig til þess, að samþykki þingsins fengist fyrir að stækka Raufarhafnarverksmiðjuna úr 2400 upp í 5000 mála afköst, og þá jafnframt leitað umsagnar margra manna, sem til náðist, um fyrirhugaða stækkun á síldarverksmiðjum ríkisins á Siglufirði. En auk þess var sérstaklega spurt um afstöðu miðstjórnar Framsfl., því frá henni hafði ekki fallið umsögn samskonar og frá miðstjórnum Sjálfstfl. og Alþfl., en hún tjáði sig samþykka þessari ráðstöfun, og þar með var talið fullvist, að Alþ. myndi undir öllum kringumstæðum ljá lið slíkri löggjöf, sem hér er farið fram á.

Ríkisstj. tók svo þá ákvörðun, eftir að hafa komizt að þessari niðurstöðu, og þá sumpart fyrir ítrekaðar áskoranir frá stjórn síldarverksmiðja ríkisins, að senda úr landi 2 menn, til þess að þeir fyrir hönd ríkisstj. hæfu samninga, annarsvegar um kaup á nauðsynlegum efnivið og vélum, en hinsvegar um fjáraflanir í þessu skyni. Án þess að fara lengra út í þá sálma, þá má fullyrða, að þessum sendimönnum ríkisstj., þeim Ásgeiri Ásgeirssyni bankastjóra og Jóni Gunnarssyni framkvæmdarstjóra, hafi tekizt prýðilega að leysa það verkefni, sem þeir tóku að sér. Þeir festu kaup á um 85% af þeim erlendu vörum, sem þarf að kaupa í þessu skyni, og tókst að fá lán fyrir miklum hluta af erlendu efni og afla frekari lánstilboða. Og eins og stendur í grg., þá tókst að gera þetta án þess að á þessar vörur félli sú verðhækkun, sem annars yfirleitt hefir fallið á flestar vörur, eftir að styrjöldin brauzt út.

Ég hygg, að þessi ráðstöfun hafi verið skynsamleg og muni mælast vel fyrir. Ég vænti þess vegna, að hv. Alþ. leggi á þetta samþykki sitt, en verði þetta að l., þá er nauðsynlegt að veita ríkisstj. heimild til þess að stækka þá lántöku, sem fyrirhuguð var í sambandi við stækkunina á síldarverksmiðjum ríkisins úr 1½ millj. upp í 3,2 millj. Þessi upphæð sundurliðast þannig: Stækkun á síldarverksmiðjum ríkisins á Siglufirði kr. 600000. Ný síldarverksmiðja á Raufarhöfn með 5000 mála afköstum á sólarhring kr. 2000000. Stækkun á síldarverksmiðjum ríkisins á Siglufirði um 2500 mála afköst á sólarhring kr. 600000. Þetta er samtals 3200000. Það eru 1700000 kr. ofan á þá 1½ millj. kr., sem l. heimila ríkisstj. að taka í þessu skyni.

Ég skal svo aðeins til frekari rökstuðnings þörfinni í þessu efni leiða athygli hv. þd. að því, að það hefir alltaf komið berar og berar í ljós, að það er mest þörf á því með hliðsjón af smáskipaflotanum, að hafa alla hluti og aðstöðu til vinnslu á síldinni á Raufarhöfn, því mörg ríkustu síldarmiðin liggja austan Raufarhafnar, svo erfitt er að sækja með þá veiði, sem aflast þar, alla leið til Siglufjarðar. Það myndi reynast mikil úrbót í þessu efni, ef stór verksmiðja væri rekin á Raufarhöfn. Það þykir því ekkert áhorfsmál fyrir ríkið að ráðast í þessa framkvæmd.

Nái þetta frv. samþykki, sem ég leyfi mér að vona, þá standa til þess allar vonir, að verkið verði framkvæmt nægilega snemma til þess, að þessi aukning geti komið að notum á næstu síldarvertíð.

Án þess að hafa um þetta frekari hugleiðingar, þá hygg ég, að takist okkur á annað borð að flytja að þungavöru til þess að reka atvinnurekstur á sjónum, þá muni aukin afköst síldarverksmiðjanna öðru fremur verða til þess að bæta afkomu þjóðarinnar.

Ég tel svo ekki nauðsynlegt að láta frekari greinargerð fylgja frv. á þessu stigi, en legg til, að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.