02.01.1940
Neðri deild: 97. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1121 í B-deild Alþingistíðinda. (2277)
112. mál, meðferð einkamála
*Frsm. meiri hl. (Bergur Jónsson) :
Með því að hv. 7. landsk. þm. hefir ekki borið fram brtt. að þessu sinni, er ekki ástæða til að halda uppi umr. um þetta. Ég vil aðeins geta þess viðvíkjandi síðustu málsgr. frv., að varla getur komið til mála, að þeir menn, sem hafa verið í embætti og hafa fengið réttindi og skyldur til þess að dæma í héraðsdómi, séu skyldir til þess að taka þetta próf. Ég hefi svo ekki um þetta fleiri orð að sinni.