03.01.1940
Neðri deild: 98. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1121 í B-deild Alþingistíðinda. (2281)

112. mál, meðferð einkamála

*Garðar Þorsteinsson:

Ég gat þess við 2. umr., að ég myndi bera fram brtt. við frv. og hvernig sú brtt. yrði að efni til, sem sé, að ekki yrði vikið frá þeirri reglu, sem sett var í l. 1936, að þeir, sem vilja fá skírteini sem málflutningsmenn fyrir undirrétti, þreyti prófraun, sem ákveðin er í l., sem sé að þeir sýni með flutningi 4 mál, að þeir séu hæfir til starfsins. Í þessu frv., sem hér liggur fyrir, er þetta skilyrði fellt niður og þeim mönnum veittur skilyrðislaus réttur til málflutnings, sem hafa verið sjálfstæðir málflutningsmenn í 3 ár fyrir 1. jan. 1937 eða fulltrúar málflutningsmanna fyrir sama tíma.

Sömuleiðis er lögfræðingum, sem skipaðir hafa verið í dómaraembætti, veittur sami réttur til þess að flytja mál. Nú er Alþ. það sjálfsagt kunnugt, að þetta skilyrði var almennt, þannig að þessi skylda hvíldi jafnt á öllum, sem ekki voru hæstaréttarmálflutningsmenn, hvort sem þeir höfðu verið fulltrúar málflutningsmanna lengri eða skemmri tíma eða stundað sjálfstæðan málflutning. Það mætti, ef þörf þætti, benda á marga málflutningsmenn í Reykjavík, sem höfðu stundað málflutning lengi fyrir 1. janúar 1937, sem samt urða að þreyta þessa prófraun. Ég get þess vegna ekki séð, hvers vegna nú ætti að breyta þessu þannig, að nokkrir málflutningsmenn, sem ekki hafa af einhverjum ástæðum haft dug í sér til að ljúka þessari raun, fengju undanþágu frá þessari skyldu. Ég vil þess vegna bera þá brtt. fram, að málflutningsmenn, sem stundað hafa málflutning fyrir 1. janúar 1937, verði eftir sem áður að þreyta þessa prófraun, sem hefir sýnt sig að ekki er erfið, með því að flytja 4 mál, en hinsvegar vil ég ganga inn á, að sá frestur, sem settur var í 1. frá 1936, verði framlengdur til 1. janúar 1942. Ég hygg, að það sé vandalaust fyrir þá menn, sem þarna koma til greina, að þreyta þessa prófraun á næstu 2 árum. Ég sé ekki, hvaða réttlæti væri í því að hafa lagt þessa skyldu á herðar allra málflutningsmanna í Reykjavík, sem hafa stundað málflutning í fjöldamörg ár, en hinsvegar setja allt í einu l. um það, að einhverjir, sem ekki hafa orðið við þessari skyldu, skuli geta orðið málflutningsmenn án prófraunar. Mér skilst, að l. eigi í þessu tilfelli sem öðrum að ná jafnt yfir alla. Ég legg hinsvegar einnig til, að þeir, sem hafa stundað málflutning við héraðsdóm utan Reykjavíkur, skuli hafa sama rétt, en það var gert að skilyrði í l. frá 1936, að viðkomandi hefði stundað málflutning fyrir héraðsdómi í Reykjavík. Ég legg til, að þessir menn hafi sama rétt hvar á landinu sem er til að ljúka þessari prófraun fyrir hvaða héraðsdómi sem er. Í öðru lagi legg ég til, að síðari málsl. 1. gr. frv. falli burt, en þar segir, að lögfræðingar, sem skipaðir hafi verið í dómaraembætti eða skipa megi í föst dómarasæti, skuli undanþegnir þessum ákvæðum. Ég sé enga ástæðu til að veita þessum mönnum undanþágu frá að þreyta prófraunina. Ég fæ ekki séð, að lögfræðingar, sem eru svo heppnir að vera skipaðir í dómaraembætti t. d. í 4 mánuði, eigi að hafa rétt til að flytja mál fyrir undirrétti án þess að hafa flutt nokkurt mál á æfi sinni, eða dómari, sem hefir haft embætti úti á landi, sé skilyrðislaust hæfur til að flytja mál. Ef þessir menn vilja taka að sér málflutning í Reykjavík, er ekki til of mikils mælzt, að þeir flytji 4 prófmál og fái vottorð um, að þeir séu hæfir til starfsins. Ég fæ ekki séð, ef á annað borð er fallizt á, að prófraunir eigi rétt á sér, að þá eigi að mismuna mönnum eins og gert er ráð fyrir í frv. Ég þekki t. d. einn málflutningsmann, sem hefir stundað málflutning samfleytt hér í Reykjavík frá því árið 1917 og haft hér opna málflutningsskrifstofu allan þann tíma, og hann varð að flytja fjögur mál sem prófmál fyrir héraðsdómi, og hann varð að ljúka þeirri prófraun fyrir 1. jan. 1940. En hinsvegar er enginn vafi á því, að slíkur maður, sem hefir stundað málflutning svona lengi, hefði alveg eins átt að komast undir þá undanþágu. sem hér er farið fram á. Þó að það kunni að vera einhverjir menn, sem hafa stundað málaflutning sjálfstætt í þrjú ár samfleytt fyrir 1. jan. 1937, þá er ekki til of mikils mælzt, þótt þess sé krafizt, að þeir ljúki þessari prófraun á næstu tveim árum. Þeir menn, sem hafa gegnt dómaraembættum um lengri eða skemmri tíma, eiga einnig að ljúka svona prófi. Engin ástæða er til þess að létta á þessum skilyrðum, því að ekki á að opna málflutningsstörf fyrir héraðsdómi fyrir hverjum sem er. Ákvæðin um próf fyrir slíka menn eru sett til þess að vinza þá menn úr, sem hafa hæfileika til þess. Ef lögfræðingar ættu yfirleitt að öðlast slík réttindi, ef þeir hefðu verið við málflutningsstörf um nokkurn tíma, eða fulltrúar hjá hæstaréttarmálaflutningsmönnum, myndi það verða ákaflega létt fyrir þá. Það er sjálfsagt að gera þá kröfu til slíkra manna, að þeir flytji prófmál, og sömuleiðis sjálfsagt að gera þá kröfu til þeirra, sem hafa gegnt héraðsdómaraembættum. Ef menn eru sammála um, að ákvæði l. nr. 83 frá 23. júní 1936, um meðferð einkamála í héraði, séu réttmæt, hversvegna á þá að opna allar gáttir fyrir hverjum þeim manni, sem kemst í dómaraembætti, jafnvel þó að hann sé þar e. t. v. aðeins eina viku? Að vísu er sanngjarnt að gefa slíkum mönnum einhvern frest til viðbótar til að ljúka þessari prófraun, en ekki að láta þá sleppa algerlega við slíkt próf.

Þegar l. um hæstarétt voru sett árið 1920, þá urðu nokkrir menn aftur úr, sem stundað höfðu málflutningsstörf fyrir yfirdómi, og þeim var veittur ákveðinn frestur til þess að taka próf fyrir hæstarétti. Lögfræðingar höfðu rétt til að flytja mál fyrir yfirdómi, þó að þeir hefðu ekki lögfræðipróf með 1. einkunn, og þeir áttu að fá að flytja mál fyrir hæstarétti, ef þeir hefðu á næstu þrem árum sýnt með flutningi fjögra mála, og eitt þeirra skyldi vera opinbert mál, að þeir væru hæfir til að vera hæstaréttarmálaflutningsmenn. Lögfræðingar luku þá sinni prófraun fyrir hæstarétti, hvort sem þeir höfðu 1. einkunn eða ekki, en þá voru það líka nokkrir menn, sem ekki notuðu þennan frest, vegna þess að þeir voru við önnur störf, og þess vegna voru síðar sett l. hér á Alþ. um að veita þeim framhaldsfrest til að koma þessu í lag. Mér virðist eðlilegt, að Alþ. væri að þessu leyti sjálfu sér samkvæmt, og veitti þeim mönnum, sem hafa dregizt aftur úr og ekki lokið slíku prófi enn, tveggja ára frest til þess, eins og áður var gert, en ekki leyfi til að komast algerlega hjá slíkri prófraun. Hinsvegar tel ég rangt að opna málflutning fyrir héraðsdómi upp á gátt fyrir öllum þeim, sem hafa stundað málflutning í þrjú ár fyrir 1. jan. 1937, eða verið settir í dómaraembætti. Sú till. er ekki í samræmi við ákvæði l. frá 23. júní 1936, og líka í ósamræmi við þá venju, sem myndazt hefir, þegar l. um hæstarétt voru samþ., að veita undanþágu í þrjú ár fyrir þá lögfræðinga, sem ekki höfðu 1. einkunn, en svo sem kunnugt er, er það nú skilyrði til að verða hæstaréttarmálaflutningsmaður, að viðkomandi lögfræðingur hafi lokið prófi með 1. einkunn. Ég vil því í leyfa mér að bera fram skriflega brtt., er hljóðar svo: „Við 1. gr. Meginmál greinarinnar skal orða svo: Lögfræðingar þeir, sem stundað hafa málflutning fyrir héraðsdómi sjálfstætt eða sem fulltrúar hæstaréttarmálflutningsmanna, áður en lög nr. 85 frá 23. júní 1936 öðluðust gildi, skulu hafa rétt til að flytja mál fyrir héraðsdómi fyrst um sinn, en lokið skulu þeir hafa rauninni fyrir 1. jan. 1942“.