23.11.1939
Neðri deild: 66. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1143 í B-deild Alþingistíðinda. (2343)
35. mál, hlutarútgerðarfélög
Frsm. meiri hl. (Skúli Guðmundsson) :
Það er langur tími liðinn síðan þetta frv. var til fyrstu umr., sem var um miðjan marz síðastl. Sjútvn. hefir tekið það til athugunar, en hefir ekki orðið að öllu leyti sammála. Meiri hl., 4 af 5, leggur til, að frv. verði samþ., eins og þskj. 281 ber með sér, en formaður n., hv. þm. Ísaf., var á öðru máli, og geri ég ráð fyrir sérstöku nál. frá honum, þótt það sé ekki komið fram ennþá. Ég vil nú við þessa umr. fara yfir einstakar greinar frv. og skýra þær nokkuð, og síðan málið í heild.
Í 1. gr. segir um markmið félaganna, að það sé að reka fiskveiðar á hlutaskiptagrundvelli og annast í sambandi við þær innkaup á vörum, hagnýtingu afla, sölu hans o. fl.
Í 2. gr. eru fyrirmæli um, hvernig stofna skuli slík félög. Ef 5 menn eða fleiri verði ásáttir um stofnun slíks félags og að gerast meðlimir þess, skuli þeir, að fengnu samþykki hlutaðeigandi bæjar- eða sveitarstjórnar, setja félaginu samþykktir í samræmi við lög þessi, og skuli leita staðfestingar ríkisstj. á þeim. Breytingar á þeim samþykktum þurfa einnig samþykkis ríkisstjórnarinnar. — Þetta skilyrði stafar af tryggingarsjóðsákvæðum 7. gr., sem ég kem seinna að.
3. gr. er um það, að þeir einir geti orðið félagar hlutarútgerðarfélags, sem ráðast hjá félaginu á skip þess eða í landi, eða félagsmenn samþykki á félagsfundi, og að skylt sé mönnum, sem hjá félaginu vinna, að gerast félagar, nema þeim, sem ráðnir eru á skip í forföllum annara. Í 4. gr. er fram tekið, að ábyrgð félagsmanna á skuldbindingum félagsins verði aldrei hærri en 300 kr. á hverjum þeirra, ennfremur hvernig fari um skuldbindingar, er maður deyr eða fer úr félaginu. 5. gr. segir svo, að skipverjar og aðrir fastir starfsmenn skuli ráðnir gegn ákveðnum hlut af afla, og skal hluturinn vera full greiðsla fyrir vinnu þeirra. Fyrirkomulag hlutaskiptanna skal ákveðið í samþykktum félagsins. veiðarfæra- og beitukostnaður, kol, olía og salt greiðist af óskiptum afla.
Þetta hlutaskiptafyrirkomulag er miklu víðtækara en tíðkazt hefir og að því leyti nýmæli. Við vitum, að þessu hefir verið hagað þannig, að fastir starfsmenn útgerðarinnar í landi, svo sem skrifstofumenn og forstjórar, hafa ekki verið ráðnir upp á aflahlut. En flm. þessa frv. álíta, að þannig sé það heilbrigðast, að hlutaskiptin nái ekki siður til þeirra en sjómanna, og til allra landmanna, hvaða verkefni sem þeir hafa hjá félaginn. Ég held, að ekki verði um það deilt, að sanngjarnt sé, að þeir beri sinn hluta af hallanum, eins og sjómennirnir ef illa gengur, og fái sinn hluta af hagnaði, þegar vel árar.
Í 6. gr. ræðir um gjald í varasjóð, 1% af óskiptum ársafla. Í þann sjóð skal og renna árlegur tekjuafgangur félagsins, og ársvextir skulu lagðir við höfuðstólinn. Fé varasjóðs má nota sem veltufé í þarfir félagsins. Úr sjóðnum greiðist tekjuhalli, sem verða kann á rekstri félagsins.
Þá kemur 7. gr., þar sem um algert nýmæli er að ræða, eins og í 5. gr. Til þess að tryggja félagsmönnum árlegar lágmarkstekjur, skal stofna tryggingarsjóð, eftir nánari ákvæðum í reglugerð, sem félagið setur. Skal sú reglugerðsamþ. af bæjar- eða sveitarstjórn, þar sem félagið á heima, og staðfest af ríkisstj. Tekjur sjóðsins skulu vera: 1. Árlegt gjald, 1% af óskiptum afla félagsins, miðað við verð afla upp úr skipi. 2. Árlegt tillag frá hlutaðeigandi bæjareða sveitarfélagi, er nemi jafnhárri upphæð og gjald samkv. tölulið 1. verður árlega.
Heimilt er að ákveða að tillög í sjóðinn skuli vera hærri en að framan greinir, ef þurfa þykir, enda sé það samþ. af hlutarútgerðarfélaginu og viðkomandi bæjar- eða sveitarstjórn.
Fé sjóðsins skal ávaxta í banka eða annari tryggri peningastofnun, og skulu vextir af því lagðir við höfuðstól um hver áramót.
Hlutarútgerðarfélag eða stjórn þess getur ekki ráðstafað innstæðu tryggingarsjóðs, og óheimilt er að skerða sjóðinn til lúkningar skuldum félagsins, en hætti félagið störfum, skal sjóðurinn ávaxtaður áfram á nafni hlutaðeigandi bæjareða sveitarfélags, sem getur notað innstæðu hans til að greiða tillög í tryggingarsjóði annara hlutarútgerðarfélaga, sem þar starfa.
Sumir menn hafa minnzt á það, að hér væri verið að leggja of miklar byrðar á sveitarfélögin. Svo getur virzt. En ég geri alls ekki ráð fyrir, að þarna verði ávallt um raunveruleg útgjöld að ræða af bæjar- eða sveitafélags hálfu. Þau mundu fá þessi sjóðsframlög endurgoldin á einn eða annan hátt í mörgum tilfellum. Ég veit þess mörg dæmi, að sveitar- eða bæjarfélög, þar sem félagssamtök um útgerð hafa verið stofnuð, hafa lagt þeim til fjárhagslegan stuðning og talið það miklu heppilegra fyrir sig en að leggja fram stórfé í atvinnubætur, sem yfirleitt eru bundnar við óarðbærar framkvæmdir. Með því að stuðla að arðbærum atvinnurekstri má spara mikil útgjöld við fátækraframfæri, og þannig gætu bæjar- og sveitarfélög haft bæði beinan og óbeinan hagnað af því fé, sem þau legðu til slíkra tryggingarsjóða.
Staðfesting bæjar- eða sveitarstjórnar á félagssamþykktum samkv. 2. gr. er nauðsynleg m. a. vegna framlags þessa, sem getur í 1. gr. Sá réttur fylgir framlagsskyldunni að hafa eftirlit með því, að samtökin séu stofnuð á heilbrigðan hátt, og þetta er sjálfsagt atriði. Hitt mætti segja, að væri ekki eins sjálfsagt, að ríkisstj. þyrfti að gefa samþykki til félagsstofnunarinnar. En ég geri ekki ráð fyrir, að það ákvæði komi að sök, því að víst má telja, að ríkisstj. muni aldrei hindra slíkan félagsskap. Ákvæðið er aðeins sett til þess, að ríkisstj. geti haft eftirlit með því, að félögin haldi sér á grundvelli laganna. Félögin eiga að öðru leyti að vera frjáls að því, hvernig þau hafa sína reglugerð og samþykktir, aðeins að þau séu innan þess ramma, sem gert er ráð fyrir í frv.
Um það, sem eftir er af frv., 8.–17. gr. þarf ekki miklar skýringar. Þar eru ákvæði um stjórnir félaga, vald félagsfunda og tilhögun í félögunum, um skrásetning félaga og hvað fyrir hana skuli greiða, hvernig félagi megi slíta o. s. frv. Þessi ákvæði munu að mestu leyti vera sniðin eftir samvinnulögunum. Í 15. gr. er gert ráð fyrir, að félögin skuli undanþegin tekjuskatti til ríkisins af því fé, sem þau leggja í tryggingar- og varasjóði, og að heimilt sé bæjar- eða sveitarstjórnum að velta þeim undanþágu frá útsvarsgreiðslu. Ég sé, að brtt. er komin fram á þskj. 293 frá hv. 6. þm. Reykv., um að fella þá heimild burt. Ég fæ ekki séð, að ákvæðið komi að sök, þar sem það er aðeins heimild, og ekki getur talizt ástæða til að lögbjóða að íþyngja þessum útgerðarfélögum með útsvörum handa þeim sveitar- eða bæjarfélögum, sem leggja þeim til fé í tryggingarsjóð, en vitað um önnur útgerðarfyrirtæki, stofnuð og starfrækt á ólíkan hátt, sem njóta nú mikils gjaldfrelsis af hálfu hins opinbera. Önnur brtt. á þskj. 293 er um að fella orðin „skipaútgerð ríkisins“ niður úr 16. gr., þar sem segir, að félögin skuli vera undir eftirliti ríkisstj., sem geti „falið skipaútgerð ríkisins eða fiskveiðasjóði framkvæmd þess“. Við þá brtt. hefi ég ekkert að athuga, tel það svo lítilvægt atriði.
Ég hefi þá gert grein fyrir einstökum atriðum frv. Eins og fram kemur í grg. þess, er tilætlunin að skapa grundvöll handa sjómönnum til að mynda á félagsskap sín á milli, þar sem þeir geti, ásamt þeim, sem að útgerðinni vinna í landinu, orðið eigin húsbændur.
Á þrem þingum áður hafa þeir sömu þm., sem að frv. standa, flutt hér frv. um útgerðarsamvinnufélög, en það hefir ekki náð fram að ganga. Þetta frv. er í aðalatriðum hið sama, þótt nýmæli séu nokkur, eins og ég hefi skýrt frá, og nafni breytt. Ég tel fyrir margra hluta sakir rétt, að þessi lög séu sett. Með því er ekki verið að þvinga neinn til að taka upp slíkt atvinnurekstrarskipulag, aðeins auðvelda það og setja því heilbrigðar skorður. Um það þarf lög ekki síður en um hlutafélög, samvinnufélög o. s. frv. Ég er ekki í vafa um það, að þetta fyrirkomulag hefir ýmsa kosti umfram þá tilhögun, sem höfð hefir verið á útgerð hér. Það má t. d. minna á, að oft hafa orðið þeir hagsmunaárekstrar milli vinnuveitenda og vinnuþiggjenda við fyrirtækin, að vinnustöðvanir hafa orðið og leitt til stórtjóns fyrir þjóðarheildina og þessa aðilja sjálfa. Meira að segja hefir komið fyrir, að ríkisvaldið hefir orðið að grípa inn í til að setja deilurnar niður með löggjöf. Ég teldi það tvímælalaust heppilegra, að í staðinn fyrir þessa stríðandi aðila kæmu félög, þar sem mennirnir, sem við fyrirtækið vinna, reka það sjálfir, vinnuveitandi og verkamaður sameinaðir í sömu persónu, svo að slíkur ágreiningur gæti ekki orðið. Og þetta er einmitt aðaltilgangur frv., að greiða fyrir því, að þannig félagsskapur geti risið upp. Ég vænti þess, að ef það verður að lögum, muni þess skammt að bíða, að einhverstaðar verði hafizt handa um stofnun slíkra félaga. Það má gera ráð fyrir, að það verði víða erfitt átak, en ég er ekki í vafa um, að það er mögulegt, ef ákveðinn vilji er fyrir hendi.
Ég sé ekki ástæðu til að fara um þetta fleiri orðum, en vænti þess, að málinu verði vel tekið af hv. deild, og að það nái fram að ganga.