23.11.1939
Neðri deild: 66. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1147 í B-deild Alþingistíðinda. (2345)

35. mál, hlutarútgerðarfélög

Frsm. meiri hl. (Skúli Guðmundsson); Hv. frsm. minni hl. (FJ) hóf ræðu sína á því, að sig vantaði skýringar á því, hvers vegna slík samtök gætu ekki starfað á grundvelli hlutafélagalaganna eða samvinnulaganna. Því er þar til að svara, að samvinnulögin eru fyrst og fremst miðuð við verzlunarsamtök, og það veit hv. þm. vel, að nokkuð annað á við um verzlunarstarfsemi en útgerðarrekstur. Það er kunnugt, að stofnuð hafa verið víða svonefnd útgerðarsamvinnufélög, sem hafa haldið sig að nokkru leyti á grundvelli samvinnulaganna, en vikið af honum í mörgu, af því að hann hentaði þeim ekki. Því hafa flm. þessa frv. talið þurfa nýtt form fyrir félagsskapinn. Munurinn á þessu frv. og því, sem verið hefir, er t. d. sá, að hlutaskiptafyrirkomulagið hefir ekki náð nema til sjómanna, en á eftir frv. að ná til allra. — Um hitt, að lögin um hlutafélög séu betra form slíks félagsskapar en frv., er varla orðum eyðandi, og ég er hissa á, að hv. þm. skuli halda slíku fram. Mér þykir undarlegt, ef hann telur heppilegra, að hlutafjáreign ráði atkvæðisrétti sjómannanna í fyrirtæki, sem þeir vinna við. Það er rétt, að þetta frv., þó að lögum yrði, myndi fráleitt útiloka vinnudeilur. Það geri ég mér enga von um, þótt frv. verði samþ., að allir hlaupi til að stofna hlutarútgerðarfélög og breyti þannig rekstri allrar útgerðar í landinu í einu vetfangi. Það eru engar hömlur lagðar á þá, sem vilja reka útgerð eins og tíðkazt hefir, með keyptum vinnukrafti, eða hina, sem vilja heldur starfa í annara þjónustu en vera eigin húsbændur.

Hv. þm. fullyrðir, að verulega sé hér gengið á þann rétt, sem veittur hafi verið með vinnulöggjöfinni. Þetta er mesti misskilningur. Því að þeir, sem eiga sjálfir fyrirtækin, sem þeir vinna við, eru hvorki vinnuveitendur né vinnuþiggjendur, og vinnulöggjöfin kemur þeim ekkert við. Eða við hverja er að semja, þegar t. d. 10 menn kaupa bát, gera hann út í félagi og vinna allt að útgerðinni sjálfir? Hafi þeir samið um þetta fyrirfram sín á milli á frjálsan hátt, hvernig hlutum skuli skipt, hvernig þeir fái arð vinnu sinnar, sé ég ekki, að það mál komi verklýðsfélögunum eða atvinnurekendum nokkurn hlut við. Margir menn eru svo gerðir, að þeir kjósa heldur að vera eigin húsbændur en annara þjónar, ef þeir eiga kost á því. Þeir sem heldur vilja halda áfram að selja vinnuafl sitt á grundvelli vinnulöggjafarinnar, geta vitanlega gert það eftir sem áður, og sjómenn geta starfað áfram í sínum sjómannafélögum o. s. frv. Af þeim er enginn réttur tekinn.

Ef hv. þm. vill gera þá breytingu á frv., að hlutarútgerðarfélög fái forgangsrétt til lána úr fiskveiðasjóði, get ég verið með honum í því að reyna að koma þeirri breyt. inn. Hann hafði ekki trú á, að menn vildu stofna slík félög. Ég held aftur á móti, að lögin myndu verða notuð. En ef löggjöfin liggur ónotuð, eins og hann býst við, er hún og öll hennar ákvæði hættulaus sjómönnum og verkamönnum og óþarft að berjast móti henni.

Ég tók það fram, að hér er ekki verið að þvinga ákveðnu skipulagi upp á nokkurn mann. En það gæti farið svo, að fylkingar hinna stríðandi aðila færu að þynnast og að í staðinn kæmu frjáls samtök þeirra manna, sem að útgerðinni vinna, bæði á sjó og landi, þar sem ekki væri við aðra að deila um arðinn af vinnunni, og ég teldi þjóðinni skaðlaust, þó að svo færi.