23.11.1939
Neðri deild: 66. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1150 í B-deild Alþingistíðinda. (2348)
35. mál, hlutarútgerðarfélög
*Einar Olgeirsson:
Viðvíkjandi því, sem hv. 6. þm. Reykv. sagði, vil ég leyfa mér í fyrsta lagi að skjóta því fram, að það munu ekki vera til bönn við því, að svona félagsskapur sé rekinn. Það er því ekki þörf á þessu frv. frá því sjónarmiði, að leyfa mönnum að reka slík útgerðarfélög. Ég sé ekki betur en að hver maður geti myndað svona félag, svoleiðis að það er ekki aðalatriðið.
Það, sem hv. frsm., þm. V.-Húnv., var að tala um, var það, að mynda frjálsari samtök fyrir sjómenn, svo þeir gætu rekið sína eigin útgerð og verið sínir eigin húsbændur, þar sem mótsetningin milli atvinnurekenda og verkamanna yrði upphafin og allir yrði frjálsir. Þessi hugsunarháttur ber nokkurn vott um, að honum er ekki fullkomlega ljóst, í hverskonar þjóðfélagi við búum, — þar sem heil stétt manna lifir á því að selja sína vinnu, og eiga ekki neitt nema sinn vinnukraft.
Fyrsta skilyrðið til þess, að þessir menn geti orðið frjálsir, er, að þeir losni úr eignaleysinu og úr þeirri aðstöðu að þurfa að selja sinn vinnukraft til atvinnurekenda. Ég vil spyrja hv. frsm., hvað í þessu frv. miðar að því að losa verkamenn úr þessari tegund þrældóms. Hvaðan eiga menn, sem vilja lifa á því að skapa sér framleiðslutæki, að fá fjármagn til þess? Þeir geta ekki gert það, hafa ekki neina peninga til þess. Í þessu frv. eru bókstaflega engar ráðstafanir til þess gerðar, að menn geti aflað sér fjár. Þess vegna er ekkert í þessu frv., sem miðar að því að gera mönnum kleift að koma atvinnurekstrinum af stað. Mér finnst því, að hv. þm. V.-Húnv. sé ekki ljóst, í hverju meinsemdin liggur. Á meðan atvinnureksturinn er í höndum auðvaldsins, verður engin leið fundin til þess að leysa þessi mál. Ég býst við, að þessir menn muni benda á það, að hægt sé að snúa sér til bankanna. En það er nú svo, að það er ekki hægt fyrir fátæka sjómenn að fá lánað fé, hvorki þar né annarstaðar. Og meira að segja, þó að þeir gætu það, þá væri máske þessum flm. ljóst, að renturnar af lánum bankanna myndu verða svo háar, að það mundi beinlínis verða arðrán gagnvart sjómönnum, og þeir myndu verða neyddir til þess að þræla fyrir því og skaffa rentur til handa þeim mönnum, sem eiga fjármagnið. Í öðru lagi talaði hv. flm. um, að verða myndu frjálsari samtök. Það lítur nokkuð einkennilega út, að þetta frv. eigi að vera nokkurskonar tengiliður milli útgerðarfélaganna og ríkisvaldsins. Hver félagalög verður að samþykkja af viðkomandi yfirvöldum. Ég veit ekki til þess, að samvinnufélögunum hafi verið sett þau skilyrði af hendi ríkisins, sem sett eru í sambandi við þessi félög.
Svo er síðasta atriðið í sambandi við þetta, að þó að svona félögum verði lánað fjármagn til atvinnurekstrar, þá eru tvær hömlur eftir, sem gera það að verkum, að samtökin — meðan þjóðskipulagið er svona hjá okkur — yrðu ekki frjáls. Hér eru líka lagðar fjárhagslegar hömlur. Hugsum okkur, að svona félög kæmust á og sjómenn ættu að fara að reka útgerð. Í fyrsta lagi þarf að sjá um kaup á vörum til að reka útgerðina, svo sem kol, salt og annað fleira. Strax í sambandi við öll kaup koma til greina lagalegar og fjárhagslegar hömlur. Þau eru lagalega bundin gjaldeyrisnefnd og ríkisvaldinu, sem myndu neyða þau til þess með l. að kaupa dýrari vörur til útgerðarinnar heldur en þau gætu aflað sér, ef verzlunin væri frjáls. Í öðru lagi yrðu þau fjárhagslega skaðbundin starfsemi auðvaldsins, sem gerir það að verkum, að þau myndu aldrei fá vörurnar með réttu verði. Sjómenn yrðu að tryggja sér land, til þess að geta lagt upp aflann. Sjómenn þekkja, hverskonar einokun hefir skapazt af slíku hér á landi. Þarna kemur aftur að arðráninu á þessum mönnum. Svo kemur til salan á vörunum. Þessi frjálsu samtök, sem hv. þm. V.-Húnv. er að lofa, eru ekki einu sinni svo mikið, að þeir séu frjálsir að því að selja fiskinn. Nú er einokun á öllum íslenzkum fiski af hálfu ríkisins. Þessi hlutarútgerðarfélög hafa engan rétt til að selja fisk. Í viðbót við þessa lagalegu þvingun er svo þrengt að þeirra kosti, að þeir hafa ekki fjármagn til þess að geta komið fiskinum á þann markað, þar sem bezt verð fengist fyrir hann. Það er ekki til neins að vera að tala um frjáls samtök nokkurra fárra sjómanna innan þessa þjóðskipulags, þar sem einokun nokkurra hringa hefir allt á valdi sínu. Þess vegna er undarlegt, að menn sem þykjast í orði kveðnu vilja útrýma þeim meinsemdum, sem nú eru innan þjóðfélagsins, skuli aldrei geta séð, að ekki dugir að láta sitja við orðin tóm. Þegar þeir hafa upprætt meinsemdina, þá fyrst hafa þeir skapað möguleika til þess að sjómenn fái að njóta arðsins af sinni vinnu og að þeir verði þá nægilega sterkir til þess að önnur öfl geti ekki undirokað þá. Það kom fram í ræðu hv. frsm., að sjómenn verði sínir eigin húsbændur, en þetta er hreinasta blekking, sögð út í bláinn, og er það merkilegt af manni, sem hefir verið jafnnákominn musteri íslenzks fjármálaauðvalds og hv. frsm. Saga sú, sem sjómenn hafa af félögum eins og þessum, sannar það líka bezt. Ég fyrir mitt leyti lýsi því yfir, að ég greiði atkv. á móti frv. Ég er hv. þm. Ísaf. sammála um það, að þetta frv. snýst á móti hagsmunum sjómanna og losar þá að engu leyti við vandræðin.