23.11.1939
Neðri deild: 66. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1155 í B-deild Alþingistíðinda. (2352)

35. mál, hlutarútgerðarfélög

*Einar Olgeirsson:

Hv. þm. Barð. stóð upp og talaði um það, að menn ættu að halda sér við efnið, þegar þeir væru að tala. Ég býst nú ekki við, að hann hafi sjálfur ætlað að vera þar til fyrirmyndar, því hann fór það rækilega út fyrir efnið. En ég vil leyfa mér að segja honum það, að ef hann vill ræða hér um utanríkispólitík, þá er ég tilbúinn að taka upp umræðum um hana.

En ef við höldum okkur nú við að ræða frv. það, sem fyrir liggur, og það, sem ég gerði sérstaklega í minni ræðu, þau rök, sem hv. frsm. flutti fyrir frv. — þó það sé náttúrlega skiljanlegt, þegar menn eru sérstaklega veikir í því að standa fyrir málstað sínum, að þeir flýi sem lengst burtu frá honum og það jafnvel til Moskva —, þá skulum við nú, þar sem við erum búnir að heyra hv. þm. vera sérstaklega óheppinn í svörum, heyra, hvernig hann svaraði á heppilegan hátt, þegar líkt frv. lá fyrir þinginu, sem flutt var af nokkrum þm. Sjálfstfl. í fyrra eða hitteðfyrra. Ég man ekki, hvað þetta frv. hét á íslenzku, en meðal þm. var það kallað „copartnership“. Frv. var um það, að menn ættu að koma upp félögum og reka útgerð sameiginlega. Hv. þm. Barð. stóð þá upp og hélt stutta og laggóða ræðu. Hann sagði, að það lægi fyrir álit frá togaraeigendum um það, að hallinn af hverjum togara væri 100–120 þús. kr. Það er verið að bjóða mönnum með því að gerast þátttakendur í þessu upp á þau hlunnindi að fá þátt í þeim töpum, sem af þessu myndi hljótast, sagði hv. þm.

Ég býst ekki við, að hv. þm. kæri sig um, að ég haldi áfram að þylja ræðu hans frá fyrra ári. Hann fann til þess, að málstaður hans var ekki góður, og því flúði hann til vinar síns Stalíns. Sannleikurinn er sá, að þegar hann vildi bjóða mönnum, sem mynduðu svona félög, upp á hlunnindi, þá mundi hann ekki eftir neinu betra en því, sem fylgdi því að gerast „copartner“ í félögum þeim, sem vinir hans og núv. stjórnarsamvinnumenn í Sjálfstfl. vildu stofna með frv. því, sem þeir fluttu.

Af því að samvizkan var nú svona slæm hjá hv. þm., þá fór hann út í allt aðra sálma og sagði, að fyrst svona félög væru ekki félög sjómanna, þá væri þýðingarlaust að reyna með nokkur frjáls samtök hér á landi. (BJ: Ég dró þær ályktanir af ræðu hv. þm.). Því dró hv. þm. ekki réttari ályktanir af ræðu minni? Það er hart, ef samvinnan við íhaldið fer svona með hæfileika hans.

Hv. þm. sagði, að það þýddi ekki að vera með nein frjáls samtök. Er það kannske afleiðing af þessari röksemd, að á síðari árum hefir verið komið með hvert frv. á fætur öðru um að hneppa þessi frjálsu samtök í viðjar, og einmitt þau samtök, sem verkalýðurinn hefir myndað, hafa orðið fyrir því, að reynt hefir verið að hneppa þau í sterkari og sterkari viðjar. Hv. þm. Barð. veit, hvernig farið hefir verið með eitt bezta samvinnufélagið, byggingarfélag alþýðu, sem fyrir gerræði ríkisstj. var svipt réttindum sínum. Verkalýðurinn verður alltaf að vera að verja sín samtök fyrir sífelldum ofsóknum, sem þau verða fyrir. Það er ekki til neins fyrir þennan hv. þm. að reyna að draga dár að þeirri baráttu, sem verkalýðurinn verður þannig að heyja í þessu þjóðfélagi.

Viðvíkjandi þeim útúrsnúningi hv. þm., að rök þau, sem ég kom með í minni ræðu, hefðu ekki átt við frv., þá vil ég geta þess, að ég tók það greinilega fram í ræðu minni, að þau rök, sem ég kom með, væru móti þeim rökum hv. flm., að með þessu væri verið að gera starfsemi sjómanna frjálsa og skapa frjáls samtök þeirra á milli. Ég var að rökræða það, sem mælti á móti því, að hægt væri að samþ. frv. og gera það að l. Það er auðvitað hægt að samþ. hverskonar l. Það er hægt að samþ. l. um hlutafélagsfyrirkomulag í tunglinu. En við erum bara ekki að ræða frv., sem við sjáum ekki, að hafi neina praktíska þýðingu. Og þess vegna erum við að ræða í sambandi við þetta frv. tilganginn með frv. Ég var í minni ræðu að tala um það, að þeim tilgangi, sem hv. þm. V.-Húnv. ætlaði að ná með frv., væri alls ekki hægt að ná með því.

Hv. þm. Barð. virðist ekki sjá, til hvers samtök verkamanna og sjómanna eru. Takmarkið með þessum samtökum er ekki aðeins það, að bæta þeirra kjör í augnablikinu og hækka þeirra kaup, heldur er hið endanlega takmark fyrir þá verkamenn og sjómenn, sem finna til ófrelsis þess, sem þeir eiga við að búa, að eignast framleiðslutækin sjálfir, að gera verkamannaheildina að eiganda framleiðslutækjanna. Þetta verður bezt gert með því, að verkamannastéttin fái ríkisvaldið í sínar hendur og geri framleiðslutækin að sameiginlegri eign, og þau stærri verði rekin af ríkinu, en hin smærri með samvinnufyrirkomulagi. Þetta er það, sem hinar vinnandi stéttir stefna að, og það er þetta, sem framsóknarmönnum var ljóst, áður en þeir drógust niður í það ástand, sem þeir nú eru í. Þeim var það ljóst fyrir 10 árum, þegar Framsfl. var að berjast fyrir því að komast til valda, að það ástand, sem verkalýðurinn átti við að búa, var ein tegund af þrældómi. En það verður ekki leyst úr því á annan hátt en að verkamennirnir eignist framleiðslutækin sjálfir. Þetta verða þeir menn að gera sér ljóst, sem ræða um þjóðfélagsleg vandamál nútímans.

Hv. þm. Barð. segir svo, að ég vilji ekki, að sjómannastéttin sé leyst úr viðjum. Þvert á móti. Við þm. Sósíalistafl. höfum barizt á móti því, að samtök verkalýðsins væru hneppt í viðjar, eins og hv. þm. Barð. var að lýsa á hræðilegan hátt í sinni ræðu í sambandi við þá löggjöf, sem samþ. hefir verið á móti hinum frjálsu samtökum sjómanna. Það situr illa á honum að vera að gera gys að þessum samtökum og baráttu þeirra fyrir að halda frelsi sínu.

Þá er það tryggingarsjóðurinn, sem getið er um í 7. gr. frv., sem á að bæta laun sjómanna með, þegar þeir ná ekki því kaupi, sem þeir hafa sjálfir ákveðið og bæjar- og sveitarfélög samþ. Það er gjöf ríkisvaldsins til sjómannastéttarinnar! Það er ekki reiknað í svona smáu, þegar verið er að leggja út fé til þeirra, sem nána eru taldir eigendur togaraflotans, svo að þeir geti haldið áfram að drottna yfir atvinnutækjunum. Þá koma stærri upphæðir til greina en nefna má í sambandi við sjómennina. Ég vil minna hv. þm. á það, sem hann e. t. v. man, að þeim mönnum, sem hafa viljað leggja út í togararekstur á Íslandi, hefir staðið til boða að fá sérstaka styrki, stórfelldar gjafir frá hinu opinbera í þessu skyni, og mér er ekki kunnugt um, að nokkur hafi tekið við þessu fé. Svo á að fara að telja sjómönnum trú um, að 1% í 7. gr. sé slíkt dæmalaust örlæti, að þeir ættu að rjúka til og mynda hlutaútgerðarfélög! Hv. þm. Framsfl. kunnu hér áður að romsa upp, hvað tapazt hefði á sjávarútgerðinni vegna fiskbraskaranna. Þær raddir eru þagnaðar nú, eftir að þjóðstjórnin var mynduð utan um Kveldúlf til þess að viðhalda milljónaskuldunum, — til þess að halda öllu í sama kviksyndinu. En það situr illa á þeim mönnum, sem gefizt hafa upp við að efna kosningaloforðin viðvíkjandi Kveldúlfi, viðvíkjandi sjávarútgerðinni, uppgjöri skuldafyrirtækjanna o. fl., að ætla nú að frelsa sjómenn með þessu frumvarpi um hlutarútgerðarfélög. Ég man ekki dæmi þess í Íslandssögunni eða annarstaðar, að nokkur flokkur hafi verið eins svínbeygður eins og Framsfl. er nú beygður undir ok togaraeigendanna, sbr. Kveldúlfsmálið og ótal margt í því sambandi. Þeir ættu, framsóknarmennirnir, að tala gætilega um þessi mál.

Hv. þm. Barð. kom svo að lokum inn á það, að ekki væri rétt efnilegt að hugsa til samvinnufélaga í einhverju öðru þjóðskipulagi en þessu. Það myndi horfa illa fyrir samvinnustefnunni, ef hún ætti engan betri grundvöll en í auðvaldsþjóðfélögunum, ekki sízt eins og það skipulag hefir reynzt hér á Íslandi í útgerðarmálum. Ég vil upplýsa þennan hv. þm. um það, án þess að brjóta um of í bága við það, sem hæstv. forseti sagði áðan, að í því landi, þar sem sósíalisminn er kominn á, þar sem vinnandi stéttirnar eiga sjálfar framleiðslutækin, þar er samvinnufyrirkomulagið í útgerðarmálum eitt almennasta fyrirbrigðið. Og það er næststærsta eða stærsta útgerð heimsins, sem rekin er með þessu sniði. Þetta gæti hv. þm. kynnt sér nánar, svo að hann talaði ekki oft jafnfávíslega og áðan. Hann ætti að afla sér upplýsinga um, hvar það er og undir hverskonar skilyrðum, sem samvinnuútgerðin blómgast bezt og gefur þeim góðan arð, sem við hana vinna, þótt hún hafi á Íslandi orðið beinlínis til hjálpar við að velta töpum yfir á sjómennina og binda þeim skuldabagga um langan tíma. Það þarf ekki mikla umhugsun til að skilja það, að það er helzt hægt að reka arðvænlega útgerð með því móti að hún sé í nægilega stórum stíl og ráði sjálf nægilega vel yfir aðdráttum og sölu afurða sinna. Þetta er það, sem þarf að athuga, þegar verið er að ræða um útgerðarmál og hvernig eigi að leysa þau. Ég þykist vita, að hv. flm. beri þetta frv. fram að eins til þess að sýnast, af því að flokkur þeirra hefir verið að halda því fram stundum, að þetta fyrirkomulag myndi bjarga útgerðinni, og þess vegna hefi ég farið inn á að ræða þetta atriði við þá.

Það er ekki fleira, að ég held, sem ég þarf að taka fram í sambandi við andmæli hv. þm. Barð.