23.11.1939
Neðri deild: 66. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1158 í B-deild Alþingistíðinda. (2353)
35. mál, hlutarútgerðarfélög
Bergur Jónsson:
Ég er alveg hissa á hv. 5. þm. Reykv., að hann skuli ekki vera með þessu frv., þar sem hann er búinn að lýsa yfir því, að þetta sé alveg eins og í Rússlandi! (EOl: Þar er sósíalisminn kominn á, en ekki hér.) Ég skil ekki, hvernig hv. þm. getur staðið sig við að vera á móti svona „rússnesku“ frv. eftir öll þau fríðindi, sem hann hefir fengið frá því landi!
Hv. þm. var að vitna í gamlar þingræður eftir mig. Hann hefir sjálfsagt gott af að lesa ræður mínar, og skilja þær. (EOl: Ef þær eru ekki of gamlar!). Ég býst t. d. við, að hv. 5. þm. Reykv. myndi skiljast ýmislegt í þessu máli, ef hann settist við og læsi ræður okkar hv. þm. V.-Húnv., þegar þær koma úr höndum þingskrifaranna.
Þegar hv. þm. var að vitna í ræður mínar frá 1937, mundi hann aðeins eftir útlenda orðinu á skipulagi .því, sem þá var rætt um. Mig furðar ekkert á þessu, því þessi hv. þm. talar sjaldan íslenzku hér á Alþ., heldur einhvern blending úr íslenzku og erlendum tungum. — Ég vil mótmæla því, sem hv. 5. þm. Reykv. sagði, að ég hafi sagzt vera á móti frjálsum samtökum.
Ég hafði aðeins yfir orð hv. 5. þm. Reykv., sem hann sagði í sinni ræðu, og ég skrifaði niður eftir honum, að ekkert þýddi að vera með frjáls samtök hér á landi! Þetta heyrðu allir viðstaddir hv. þm. segja, því að hann margendurtók þetta í ræðu sinni. Nú vill hann eigna mér þessi ummæli og berst á móti þeim í síðari ræðu sinni!
Þá skal ég víkja lítillega að hv. þm. Ísaf. Sagan um pilsið átti auðheyrilega að vera ákaflega fyndin, og má hann skemmta sér yfir því. En nokkrar firrur hans vil ég leiðrétta. Af því að ég minnti þm. á, að hann hefði samþ. gengislögin, sem ákváðu kaup og kjör, þá segir hann, að ég hafi sagt, að þessi lög ættu að gilda um aldur og æfi. Hv. þm. ætlar mig ekki svo heimskan, að ég hafi sagt þetta, enda vitum við, að l. hefir verið breytt að nokkru leyti síðan þau voru sett í upphafi. Ég var ekkert að atyrða hv. þm. Ísaf. fyrir að samþ. gengislögin. Ég álít, að hann hafi með því komið fram sem fyllilega ábyrgur þm., en ég ásaka hann aðeins fyrir að muna ekki eftir þessari fyrri afstöðu sinni, þegar hann dæmir þetta frv.
Hv. þm. Ísaf. talaði um það, að ákvæði vinnulöggjafarinnar; einkum 5. gr. þeirra l., kæmi í bága við þetta frv. Þetta er rangt hjá hv. þm. Vitanlega gildir vinnulöggjöfin ekki, þegar verkamenn og sjómenn eru jafnframt atvinnurekendur sjálfir. Hvað heldur hv. þm. um það dæmi, ef 3–5 menn eiga saman bát, jafnri eign, án þess að nokkur lög væru um það? Hafa þeir ekki rétt til að skipta með sér ágóðanum af útgerðinni alveg eftir vild? Er það brot á vinnulöggjöfinni, að þeir ekki fylgja kaupgjaldsskrá sjómannafélagsins á staðnum? Hv. þm. hlýtur af þessu dæmi að sjá, að hann hefir misskilið vinnulöggjöfina og ákvæði þessa frv. Þessi misskilningur hans kom einnig fram á nefndarfundi, en það gafst ekki tími til að koma honum í skilning um hið rétta í málinu. En aftur í þeim tilfellum, sem gert er ráð fyrir í 3. gr. 2. mgr., þar sem menn eru ráðnir á skip hlutarútgerðarfélags í forföllum félagsmanna, þá koma þeir undir ákvæði vinnulöggjafarinnar, því að þeir starfa hjá eigendum hlutarútgerðarfélagsins, en eru ekki eigendur sjálfir. Þetta eru aðalatriðin í því, sem hv. þm. Ísaf. var að berjast við, þótt hann færi hvergi nærri eins viða og hv. 5. þm. Reykv., þá fór hann samt með ýmsar vitleysur og bar mig fyrir þeim. Tilgangur þessa frv. er að reyna að skapa sjómönnum tækifæri til þess að eignast sjálfir skip, og að þeir geti sjálfir notið alls þess arðs, sem starf þeirra hefir í för með sér. Þau ummæli, sem hv. 5. þm. Reykv. hafði eftir mér frá umr. um þáltill. fyrir löngu síðan, koma ekkert þessu máli við. Þau miðuðust við alveg sérstaka útreikninga, sem þá lágu fyrir, og ástand í útgerðarmálum þá.