23.11.1939
Neðri deild: 66. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1160 í B-deild Alþingistíðinda. (2355)
35. mál, hlutarútgerðarfélög
Bergur Jónsson:
Út af því, að hv. þm. Ísaf. telur vinnulöggjöfina koma í bága við þessi l., ef samþ. yrðu, og segir, að meðlimir stéttarfélaga eigi að hlíta þeim kjörum og því kaupi, sem gildir hjá stéttarfélögunum á hverjum tíma. þá fellst ég á, að það sé rétt — svo langt sem það nær. En það nær ekki til þeirra manna, sem alls ekki eru í þeirri starfsgrein, sem stéttarfélögin tilheyra. Hv. þm. Ísaf. heldur því nú fram gegn frv., sem liggur fyrir hv. Ed. um breytingu á vinnulöggjöfinni, að það sé ekki rétt að banna verkalýðsfélögum að hafa að meðlimum menn, sem tilheyra öðrum stéttum en félagið telst fulltrúi fyrir. En um þá menn, sem þannig eru í félögunum, gildir alis ekki, að þeir eigi að hlíta fyrirmælum félagsins um kaup og kjör. Aðalatriði þessa máls er það, að hér er alls ekki verið að ræða um menn, sem eru fyrst og fremst vinnuþiggjendur eða vinnuveitendur, — heldur hvorutveggja, og jafneinfalt atriði og þetta veit ég að hv. þm. Ísaf. mun skilja síðar.