30.11.1939
Efri deild: 73. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1162 í B-deild Alþingistíðinda. (2363)

35. mál, hlutarútgerðarfélög

*Ingvar Pálmason:

Þó að ég telji, að ræða hv. 2. landsk. hafi ekki haft mikil áhrif á hv. dm., tel ég rétt að fara nokkrum orðum um ýmislegt, er hann sagði. Hann byrjaði með því að segja, að með þessu frv. væri gengið inn á þá braut að lögskipa hlutaskiptafyrirkomulag. En það er misskilningur. Hér er um það að ræða að lögheimila það. Hann sagði, að mér skildist, að hér væri verið að taka upp fyrirkomulag, sem gilt hefði frá alda öðli hér á landi. (SÁÓ: Ég sagði: fyrirkomulag, sem ekki hefði gilt hér á síðari árum). Það er annað mál. Hér er verið að halda inn á braut, sem gengin hefir verið hér á landi frá fyrstu tíð. Spurningin er, hvort ekki sé fimi til kominn að athuga, hvort ekki sé hægt að spyrna við fæti um það að halda í gamalt skipulag, sem reynzt hefir vel. Hv. þm. sagði, að verið væri að ráðast á verklýðssamtökin. Ég skil ekki, hvernig hann fær það út. Ég hélt ekki, að þessi maður væri sérstaklega taugaveikiaður, svo að hann þyrfti alstaðar að þykjast sjá árásir á verklýðssamtökin. Þau geta unnið sín verkefni fyrir þessu frv. Ég hélt, að hlutverk verklýðshreyfingarinnar væri víðtækara en það eitt að fást við kaupgjaldsmál. Sannleikurinn er, að hér kemur fram það, sem inni fyrir býr hjá hv. þm. og líklega verklýðshreyfingunni, að vilja afnema alla hlutdeild verkalýðsins í framleiðslunni og láta hann fá fasta borgun fyrir alla vinnu. Hér er það atriði, sem skoðanir skiptast um. Er það þetta, sem koma á í öllum atvinnurekstri, að útiloka, að það, hvernig atvinnureksturinn gengur, geti haft nokkur áhrif á kjör þeirra, sem að honum vinna? Af ræðu hv. þm. var svo að sjá, sem þeir, sem að framleiðslunni vinna, eigi ekki að taka þátt í afkomu atvinnuveganna. Hér er ég á öndverðum meiði við hann. Ég tel, að verkamenn og þeir, sem kallaðir eru atvinnurekendur, hafi hér báðir sömu hagsmuna að gæta. Ég hefi í 35 ár fengizt við útgerð, og alltaf hafa allir mínir sjómenn verið ráðnir upp á hlut. Þeir hefðu ekki viljað hafa það öðruvísi. Ef ekki er hægt að láta atvinnuvegina bera sig á þann hátt, þá er ekki hægt að skipa þeim er að þeim vinna, í tvær deildir, sem hafa ólíkra hagsmuna að gæta, þar sem hvor togar sinn skækil í sína átt. Ég held því, að ekki sé til neins að eyða um þetta mörgum orðum. Hér verður úr að skera. hvort Alþingi er þannig skipað, að það vilji fremur fallast á stefnu hv. 2. landsk. eða þá stefnu, sem fram kemur í frv.

Hv. þm. sagði einu sinni í ræðu sinni — og það styrkti mig í þeirri skoðun, að honum hefði orðið mismæli áður, — að hér væri verið að fitja upp á nýmæli. En það er fjarri sanni. Þetta hefir viðgengizt í okkar sjávarútvegi öldum saman. Þá gat hann þess, að stofnuð hefðu verið nokkur samvinnufélög um útgerð. Hann hefði spáð því, að þau myndu ganga illa, og það hefði rætzt. Ég fer ekki frekar út í þá sálma; hann getur verið góður spámaður, en ég man ekki, hvernig þessir spádómar hans hafa rætzt. En ef fyrirtækjunum hefir gengið öðruvísi en vonir stóðu til, er sjálfsagt að leita orsakanna, en ekki láta sér nægja að vitna í spár. Ég staðhæfi, að í nokkrum tilfellum hefir ein af aðalorsökunum til þess, að illa hefir farið fyrir þessum samvinnufélögum, verið sú, að þau höfðu ekki hlutaráðningu. Því er ég hræddur um, að spá hans verði honum ekki haldgóð vörn í málinu. Ég þarf ekki að rifja upp sannanir fyrir þessu, en ég held, að ein af stoðum þeim, sem renna undir þetta frv., sé einmitt það, hvernig farið hefir fyrir sumum af þessum samvinnufélögum.

Ég ætla svo ekki að fara út í málþóf um þetta mál, en ég vildi ekki láta þetta frv. fara til atkvgr. nú við 1. umr. án þess að andmæla skoðunum hv. 2. landsk.