03.01.1940
Neðri deild: 101. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1192 í B-deild Alþingistíðinda. (2400)

35. mál, hlutarútgerðarfélög

Frsm. meiri hl. (Skúli Guðmundsson) :

Það er eins og ég hefi áður sagt, byggt á misskilningi, að verið sé að þvinga menn í slíkan félagsskap.

Út af því, sem hv. þm. sagði síðast, þar sem hann var að vitna í samvinnul. og starfsemina þar og talaði um það, hvernig mér myndi líka, ef hreppsfélögin ættu að ákveða hámarksverð á afurðir bænda í samvinnufélögunum, þá kemur það þessu máli ekki við. Ég veit ekki til, að í ráði sé, að bæjar- eða sveitarsjóðir leggi samvinnufélögunum til fé, eins og gert er ráð fyrir í. þessu sambandi.