03.01.1940
Neðri deild: 101. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1193 í B-deild Alþingistíðinda. (2401)

35. mál, hlutarútgerðarfélög

Finnur Jónsson:

Ég vildi spyrja hv. þm. V-Húnv., hvort hann teldi eðlilegt, ef samvinnufélögin nytu styrks til einhverrar starfsemi frá bæjarsjóðum eða ríkissjóði, að bæjarstjórnir eða ríkisstj. ákveði þá um kaup og kjör bænda. Reyndar má segja, að samvinnufélögin njóti vissra hlunninda; bæði hjá bæjarsjóðum og ríkissjóði, þar sem er að ræða um skattfrelsi þeirra. Myndi hv. þm. þá, ef einhver kæmi með till., sem gengi freklega í þá átt að takmarka rétt bænda, annaðhvort í gegnum bæjar- eða sveitarstjórnir eða ríkisstj., vegna þessara hlunninda, álít hana réttláta?