22.11.1939
Efri deild: 66. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1197 í B-deild Alþingistíðinda. (2406)

118. mál, framfærslulög

*Félmrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):

Ég hefi í raun og veru fátt að athuga við ræðu háttv. 1. landsk. En þó var aðallega eitt atriði í ræðu háttv. 1. landsk., sem mér þykir hlýða að eyða nokkrum orðum að, en það voru ummæli hans um nauðsyn þess, að landið yrði allt gert að einu framfærsluhéraði.

Það er skoðun mín, að hér sé nú orðið í raun réttri um formsatriði að ræða og um það, hvaða aðferð skuli beitt til að gera allt landið að einu framfærsluhéraði, því að eins og kunnugt er, var þegar með framfærslulögunum 1935, með afnámi sveitfestitímans, og með ákvæðum laga um jöfnunarsjóð bæjar- og sveitarfélaga gengið inn á þá braut, að gera landið allt að einu framfærsluhéraði. Og í frv. því, sem hér liggur fyrir, er með hinum nýju ákvæðum um jöfnunarsjóðinn stigið enn eitt spor í sömu átt. Ég fæ því ekki annað séð en að landið sé þegar orðið allt eitt framfærsluhérað, þótt ekki sé það í því formi, sem háttv. 1. landsk. virðist hafa svo mikið dálæti á.

Þá taldi háttv. 1. landsk., að styrkþegar hefði enga tryggingu gegn ofríki, er sveitarstjórnir gætu beitt þá í þeim tilfellum, er ákvæði 21. gr. laganna um vinnuskyldu kæmu til greina. En þetta er með öllu rangt, eins og auðsætt er af því, að styrkþegi getur, ef hann er óánægður með vist sína eða vinnu, lagt fram kæru til lögreglustjóra framfærslusveitarinnar, en hann verður að leita álits tveggja óvilhallra manna og verklýðsfélagsins á staðnum, áður en hann leggur á úrskurð sinn. Í annan stað getur styrkþegi skotið úrskurði lögreglustjóra til ráðherra. Þar er því falin enn ein trygging gegn hugsanlegu ofríki, og það er ekki að efa, að gangskör yrði gerð að því að stemma stigu fyrir hverskyns ofbeldi gegn styrkþegum af hálfu lögregluvaldsins.