22.11.1939
Efri deild: 66. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1199 í B-deild Alþingistíðinda. (2411)

118. mál, framfærslulög

*Félmrh. (Stefán Jóh. Stefánsson) :

Hv. 1. landsk. sagði, að hann hefði fengið það út úr orðum mínum og hæstv. forsrh., að aðalatriðið og kannske eina tilraunin til endurbóta, sem lægi í þessu frv., væri 21. gr. En frá mínu sjónarmiði er það ekki einungis 21. gr., heldur margar aðrar gr. þessa frv., sem eru tilraun til þess að koma betur fyrir framfærslumálunum í landinu. En það má vel vera, að 21. gr. frv. sé kannske merkilegust, vegna þess að með þeirri gr. er sérstaklega verið að miða að því, að í stað þess að veita styrkþegum peninga eða mat, sé reynt að útvega .þeim, sem vinnufærir eru, vinnu. Það álít ég rétta tilraun til úrlausnar á þessu vandamáli. Og það ætla ég, að hv. 1. landsk. geti orðið mér sammála um, að það mundi verða ósk allflestra þeirra manna, sem leita aðstoðar bæjar- og sveitarfélaga vegna atvinnuleysis, en eru vinnufærir, að þeir gætu fengið vinnu í stað þess að fá sveitarstyrk. Það má alltaf deila um það, hvernig sé tryggast um þetta búið, þegar menn þurfa að biðja um hjálp til þess að lifa. Það er ekki mín till., að lokaúrskurður sé hjá ráðh. heldur nefnd. Ég teldi það mjög heppilegt, að einhver landsdómur fjallaði um það mál.

Hv. 1. landsk. taldi það mikinn galla að gera landið að einu framfærsluhéraði, ef fara ætti að flytja menn úr einni sveit í aðra til þess að fá vinnu, og jafna framfærsluþunga yfirleitt eftir einhverjum ákveðnum hlutföllum. Það má lengi deila um það, hvernig eigi að jafna þessum þunga niður. En þegar athuguð er þessi höfuðeinkenni, að landið sé eitt framfærsluhérað, þá hefir þeim í flestum atriðum með l. 1935 verið náð, á meðan ekki er skert sú meginregla, sem slegið var fastri 1935, að menn eigi framfærslurétt þar, sem þeir eru staddir, þegar þeir þurfa á framfærsluhjálp að halda. En þótt menn flytji úr einni sveit í aðra, losnar samkv. frv. viðkomandi sveit ekki við að greiða með styrkþega; er það gert til þess, að sveitir eða bæjarfélög hrindi ekki af sér með einhverjum ráðum þeim sveitarþunga, sem á þeim hvílir. Og þarna á að vera náð höfuðatriðum þess, að landið sé eitt framfærsluhérað. En aðalatriðið er í raun og veru til staðar með ákvæðum þeim, sem nú eru í gildi og farið er fram á nú með nokkrum breytingum.