09.12.1939
Efri deild: 80. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1219 í B-deild Alþingistíðinda. (2431)
118. mál, framfærslulög
Páll Zóphóníasson:
Ég vil þakka hæstv. fjmrh. fyrir svar hans við minni fyrirspurn, enda þótt hann gæti ekki gefið upplýsingar um það, að hve miklu leyti hin auknu sveitarþyngsli í Reykjavík stafa af aðfluttum mönnum í bæinn. Með þessu staðfesti hann það, sem ég sagði, að þetta eru yfirleitt órökstudd ummæli. Jafnframt lofaði hann að taka til yfirvegunar, að upplýsingar um þetta gætu legið fyrir. Ég mun nú gæta að því, hvort ekki muni þá fylgja næst með reikningum Reykjavíkurbæjar skrá yfir þurfalinga. (Fjmrh: Á það að vera ættartala?)