09.12.1939
Efri deild: 80. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1219 í B-deild Alþingistíðinda. (2432)

118. mál, framfærslulög

Frsm. (Ingvar Pálmason) :

Ég geri ráð fyrir, að ég geti orðið við tilmælum hæstv. forseta um að tefja ekki umr., en þykir rétt að segja örfá orð.

Því hefir nú verið lýst yfir, bæði af hæstv. fjmrh. og félmrh., að þeir mæli mjög í gegn því, að brtt. okkar um ábyrgð ríkissjóðs verði samþ. Ég gat þess strax í gær, að það yrði að skeika að sköpuðu um það, en að það breytti ekki minni afstöðu. Ég tel, að með þessu sé of ört stefnt að því að gera landið allt að einu framfærsluhéraði, því að það er enginn vafi, að þetta er stórt spor inn á þá braut.

Hæstv. fjmrh. mintist á b-lið síðari brtt. og gat þess, að ég hefði mælt fyrir henni aðallega sem orðabreyt., en tók það fram, að hún væri ekki nema á öðrum þræði orðabreyt., heldur væri hún líka efnisbreyting. Þetta er rétt. Eins og menn sjá í frv. hljóðar upphaf þessarar gr. þannig: „Nú hefir þurfamanni eða atvinnuleysingja verið ráðstafað“. Það, sem við höfum breytt, er, að sagt er í till. okkar, „styrkþegi“, en ekki „þurfamaður“, eins og segir í frv. Hitt er efnisbreyt. Þetta er af minni hálfu af ásettu ráði gert, vegna þess að í gr. eru viðurlög lögð við því, ef flytja þarf þurfamann milli sveita, þau, að viðkomandi geti ekki öðlazt framfærslurétt í hinni nýju sveit fyrr en eftir 6 ár. Eins og þetta er nú, þá nær þetta ákvæði bæði til þeirra, sem ráðstafa verður vegna atvinnuleysis, og hinna, sem ekki stendur svo á um. Mér finnst þetta of strangt ákvæði gagnvart þeim, sem ráðstafa þarf eingöngu vegna atvinnuleysis. Ég vil þess vegna aðskilja þetta tvennt. Ég tel nauðsyn á. að þetta væri athugað, og er í því sambandi fús til að taka þessa brtt. aftur til 3. umr. og geri það hér með. Ég vildi um leið spyrja hv. 5. landsk. að því, hvort ég hafi ekki skilið hans orð rétt, að hann ætlaðist ekki til, að sín till. kæmi til atkv. nú (ÞÞ: Jú).

Að lokum vil ég svo segja það, að mér mun hafa láðst að geta þess í gær í framsöguræðu minni, að nokkurt umtal varð um 38. gr. í n. Og ég lít a. m. k. svo á, að það væri ástæða til að taka hana til athugunar, þótt það væri ekki gert fyrir 2. umr., og meiri hl. allshn. hefir það í huga að athuga hana fyrir 3. umr. Ástæðan fyrir því, að við ekki gerðum meiri gangskör að því að athuga hana. var sú, að við vildum sjá, hvernig okkar brtt. reiddi af áður. Og fari nú svo, að brtt. okkar verði felldar, þá er síður en svo minni ástæða til að taka gr. til rækilegrar athugunar. Ég tel, að ef 38. gr. verður látin standa óbreytt, þá sé raunverulega búið að gera landið að einu framfærsluhéraði með þeim takmörkunum, sem gerðar eru í frv. Ég verð að segja það, að mér hrýs hugur við þessu og þykir vera farið full ört í þessa átt. Mér er fyllsta alvara með það að óska eftir, að allshn. mætti fá tækifæri til að ráðgast um þetta mál við þá ráðh., sem hér eiga hlut að máli. Þessi afstaða mín er ekki af neinni mikilmennsku. Ég tel, að hér sé um að ræða svo alvarlegt mál, að það megi ekki stíga þetta spor nema að mjög vel athuguðu máli. Og ég vænti þess, að n. megi eiga von á því að ræða 38. gr. við viðkomandi ráðh.