16.12.1939
Efri deild: 86. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1222 í B-deild Alþingistíðinda. (2446)

118. mál, framfærslulög

*Félmrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):

Eins og hv. frsm. allshn. hefir þegar tekið fram í sinni ræðu, þá er brtt. á þskj. 466 flutt eftir ósk minni og í samræmi við það, sem rætt hefir verið um þetta mál í ríkisstj.

Eins og nú standa sakir með framfærslumál landsins, þá er það mikið verkefni og vaxandi að ráða fram úr mörgum erfiðleikum, sem standa í sambandi við þau mál.

Það er hér verið að reyna að gera tilraun til hagnýtra úrbóta, þar sem er hugsað meira um það að útvega vinnu, mönnum, sem ekki geta bjargað sér án hjálpar, en eru þó vinnufærir, heldur en að leggja þeim til framfærslueyri. Ég fyrir mitt leyti tel rétt og æskilegt, að sá ráðh., sem fer með þessi mál, geti haft sér til aðstoðar slíka nefnd, eins og hér er lagt til, sem myndi vinna að þessu, rannsaka þessi mál og gera till. um þau og hafa á hendi ýmsar framkvæmdir. Það er alltaf svo, að þegar koma fyrir málefni, sem eru örðug úrslita og mikla athugun þarf við, að bezt er, að kvaddir séu til sem flestir ráðamann, áður en ákvarðanir eru teknar, og meiri starfskraftar hafðir við allar framkvæmdir.

Satt að segja er það skaði, að framfærslumálin og sveitarstjórnarmálin hafa verið allt of mikið á hakanum, og þess hefir ekki verið gætt sem skyldi undanfarið, hvað þessi mál eru mikilsvirði og hvað mikið þau grípa inn í hag fjölda einstaklinga í landinu, auk þess sem þau snertu mjög afkomumöguleika bæjar- og sveitarfélaga landsins. Þetta stafar mjög af því, að ráðuneytin hafa verið störfum hlaðin við önnur mál, sem menn hafa álitið, að þyrfti að gefa meiri gaum og ráða fyrr fram úr.

Ég tel þess vegna rétt og eðlilegt, eins og ég hefi áður lýst yfir, að þessi ákvæði til bráðabirgða séu sett aftan við framfærslul., því þau eiga að mínu viti þar heima og hvergi annarstaðar.

Ég sé ekki ástæðu til að fara út í innihald bráðabirgðaákvæðanna, sem ég fyrir mitt leyti teldi æskilegt, að næðu fram að ganga. En í sambandi við þetta vil ég geta þess og skjóta því til hv. flm. brtt. á þskj. 434, hvort þeir gætu ekki séð sér fært að taka aftur fyrri brtt. á því þskj., því að í 4. mgr. 2. töluliðs ákvæðisins til bráðabirgða á þskj. 466 er gert ráð fyrir því sama að efni til, og þar á það bezt heima ef bráðabirgðaákvæðið verður samþ. á annað borð. Um þetta sé ég svo ekki ástæðu að fjölyrða frekar, en skal snúa mér að brtt. á þskj. 47 i, sem nýbúið er að útbýta. Skal ég þá taka undir með frsm. og skýra frá, að þessi brtt. er flutt í samráði við mig og eftir umr. við ríkisstjórnina. Auk þess mun þetta mál hafa borið á góma í fjvn., og ég þykist mega segja, að a. m. k. sumir hv. þm. í fjvn. telji mjög eðlilegt að setja slíkt ákvæði, sem hér er lagt til.

Eins og hv. frsm. tók fram, er nú svo komið högum sumra bæjar- og sveitarfélaga, að til vandræða horfir fyrir þeim. En hins vegar ætti enn að vera nokkur möguleiki á að bjarga sumum hverjum þeirra út úr mestu ógöngunum, sem næst eru hendi, ef tiltækilegt fjárframlag væri til, eins og hér er lagt til, og þá væri kannske hægt að fá eftirgjafir að einhverju leyti hjá skuldheimtumönnum þessara bæjar- og sveitarfélaga, ef hægt væri að borga einhvern ákveðinn hluta af kröfunni. Við, sem höfum haft með þessi mál að gera undanfarið, höfum orðið varir við, að tiltölulega litlar upphæðir hafa getað staðið í vegi fyrir eðlilegum afkomumöguleikum og bjargráðum sumra bæja og sveita, og í veg fyrir slíkt ætla ég að mætti koma á þennan hátt, sem hér er tekið fram. Hins vegar hefir orðið vond reynsla af því á undanförnum árum, þegar hreppsfélög hafa gefizt upp og ríkisstj. á hverjum tíma hefir verið neydd til að láta leggja þeim til styrk á 19. gr. fjárl., að það hefir verkað á sum bæjar- og sveitarfélög svipað og þegar einstaklingurinn gefst upp í lífsbaráttunni og fer á opinbert framfæri, að eftir það missir hann einhvern hluta af sínum manndómi og hirðir síður um að bjarga sér sjálfur eftir það. Það er eins og það sé ákaflega erfitt að losa hreppsfélög af 19. gr. fjárl. aftur, þegar þau eru einu sinni þangað komin, nema með sérstaklega róttækum ráðstöfunum. Hinsvegar ef tiltæk er svona upphæð, sem hægt væri að nota með mjög skynsamlegu móti, þá hygg ég, að koma mætti sveitarfélögum af ríkisframfærslu, ef nota mætti það orð. Tel ég það vel farið, að þá mætti hefta beinlínis, að þeim sveitarfélögum fjölgaði, sem gefast upp og komast á framfæri þess opinbera. Þess vegna mælist ég til þess, að till. hv. 2. þm. S.-M. nál fram að ganga. Og ég hefi ekkert á móti því, að sú skrifl. brtt., sem borin hefir verið hér fram, verði samþ.

Þó að það kannske eigi síður við, þar sem hv. flm.brtt. á þskj. 434 hafa ekki kvatt sér hljóðs til að gera grein fyrir þeirri brtt., tel ég rétt að minnast aðeins á brtt. eða ákvæðin til bráðabirgða um hið svonefnda byggðabann. Skal ég fyrst og fremst geta þess, að ég er mjög andvígur þeirri meginreglu, sem kemur fram í þessari brtt., um að þetta frelsi annars sjálfráðra manna til þess að leita sér atvinnu eftir því, sem bezt á við á hverjum tíma. Ég mun hafa sagt það við 1. umr. þessa frv., að ég gæti gengið inn á frekar að hefta að verulegu leyti frelsi þeirra manna, sem hafa gefizt upp í lífsbaráttunni og hafa orðið að leita á náðir opinberra framkvæmda um framfærslu eftir l. þar um. Það er í mínum huga mjög ógeðfelld tilhugsun að eiga að hefta frelsi þeirra manna, sem brjótast áfram af eigin rammleik og leita sér að vinnu, hvar sem hún er, kannske fara úr einu byggðarlaginu í annað, þar sem þeir hafa von um að geta bjargað sér. Mér finnst efni þessarar brtt. stefna í öfuga átt við 21. gr. frv., þar sem gert er ráð fyrir að greiða fyrir því, að menn geti fengið vinnu, og þá e. t. v. sezt að í öðru framfærsluhéraði, þar sem betra er að bjarga sér. Það er með 21. gr. frv. til framfærslul. bent á nýjar brautir til að láta fólk fá vinnu á þeim stöðum, þar sem helzt er vinnu að vænta, en hverfa frá þeim stöðum, þar sem margt fólk er og litlir atvinnumöguleikar. Mér virðist þessi brtt. ganga í öfuga átt við það, sem reynt er að gera með 21. gr. framfærslufrv., eins og það liggur hér fyrir. Því að ég get einmitt búizt við því, eftir því sem ég þekki til þessara málefna, að krafa um byggðabann, ef leyft væri með l., eða um notkun heimildarinnar til þess, kæmi ekki sízt fram frá einstökum sveitarhéruðum, þar sem álitleg skilyrði þættu til að bjarga sér og þar sem þess vegna bæjarfélög reyndu að gera ráðstafanir til þess að safna fólki saman til að bjargast þar. Ég veit þess dæmi héðan úr Reykjavík, að það hafa verið gerðar ráðstafanir til þess, að einstökum mönnum með stóran barnahóp, sem ekki hafa getað bjargað sér í Reykjavík, hefir verið hjálpað til þess að fá jörð í sveit. Ég man eftir einu slíku dæmi, þar sem var fram úr skarandi dugnaðarmaður, en með barnahóp svo stóran, að með þeirri vinnu, sem hann hafði í Rvík, var ómögulegt, að hann gæti bjargað sér þar til fulls, þrátt fyrir hans mikla dugnað og útsjónarsemi. Framfærslun. gerði ráðstafanir til þess, að maður þessi gæti sezt að í einni af sveitum landsins og fengið ábúðarjörð. Ég held, að það hafi gefizt vel, hann hefir a. m. k. getað bjargað sér. En mér er jafnljóst, að forráðamenn þess sveitarfélags voru dálítið hræddir um það, að þessi maður kynni að verða handbendi sveitarfélagsins vegna hans mikla ómagafjölda (PZ: Þeir eru enn með horn í síðu hans).

Ég skal geta þess ennfremur til dæmis, að ég þekkti ágætan verkmann hér í Reykjavík fyrir nokkrum árum, sem lá í óreglu. Hann átti fyrir konu og börnum að sjá. Hann hafði sjálfur hug á því að rífa sig upp úr óreglunni, en treysti sér ekki til þess, meðan hann væri hér í bænum, þar sem drykkjufélagar hans urðu jafnan til að draga hann með sér út í óregluna. Hann flutti suður á Reykjanes til þess að komast út úr umhverfinu, sem hafði eyðilagt velgengni hans. Þar bjargaði hann sér ágætlega í 5–6 ár; svo þegar hann var orðinn öruggur fyrir hættunni á því, að hann færi út í óreglu aftur, fluttist hann til Reykjavíkur og hefir átt hér heima síðan. Það, að þessi maður gat af frjálsum vilja flutt sig frá einum stað til annars, hefir orðið til þess, að hann hafði sig upp úr drykkjuskap og hefir orðið góður þjóðfélagsþegn.

Ég efast ekki um, að fleiri slík dæmi væri hægt að nefna um þetta og þessu líkt. Vil ég því vara hv. þd. mjög alvarlega við því að ganga inn á, að menn eftir þessari ákaflega ógeðfelldu braut, sem í brtt. er verið að stefna að, verði sviptir möguleikum til þess að hafa sig upp og áfram, eins og menn þeir, sem ég nefndi, gerðu og að hv. þm. athugi rækilega, hvort með þessari tilhögun, sem í brtt. felst, sé fundinn nokkur Aladdin-lampi, og hvort það ekki miklu frekar er mýraljós, sem í framkvæmdinni mundi verða erfitt og mörgum til óþæginda.