19.12.1939
Neðri deild: 87. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1239 í B-deild Alþingistíðinda. (2467)

118. mál, framfærslulög

*Einar Olgeirsson:

Herra forseti! Ég vil verða við beiðni hæstv. forseta að ræða mál þetta við 2. umr., en vil þó láta það koma fram nú við 1. umr. þess, að ég tei þessar aðfarir, að innleiða sveitarflutninga á ný, alveg ófærar.

Hér hafa nú verið samþ. tvenn friðunarlög, fyrir fugla og hreindýr, og langar umr. hafa farið fram í deildinni um eyðingu vargs úr fuglaheiminum, en þegar kemur að mannheimi, kveður við annan tón, þá eru borin fram frv. til ófriðunar, þar sem dregið er úr sjálfsögðum rétti þeirra manna, er hér eiga hlut að máli. Með 21. gr. þessa frv., sem fjallar um að innleiða sveitaflutninga á ný, er verið að hverfa frá þeim siðferðilega grundvelli, sem reynt hefir verið að leggja undir þessi mál að undanförnu. Ég vil því mælast til þess við þá nefnd, er fær mál þetta til meðferðar, að hún athugi það gaumgæfilega, því að það er í fyrsta lagi ómannúðlegt að ganga svona frá því, og í öðru lagi ekki vansalaust fyrir þing og þjóð.

Mun ég svo verða við tilmælum hæstv. forseta og ljúka máli mínu að þessu sinni.