29.12.1939
Neðri deild: 96. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1240 í B-deild Alþingistíðinda. (2471)

118. mál, framfærslulög

*Einar Olgeirsson:

Herra forseti! Við 1. umr. þessa máls varð það að samkomulagi til þess að tefja ekki fyrir því, að það kæmist til nefndar, að við, sem vorum því andvígir, skyldum ræða það lítið þá, og það varð einnig að samkomulagi, að við skyldum við 2. umr. mega fara meira „principielt“ út í málið heldur en tíðkast við 2. umr.

Það, sem ég hefi fyrst og fremst að athuga við þetta frv., er við 21. gr. Það, sem sú gr. felur í sér. er, að þau réttindi, sem þeir fátækustu, sem hafa þurft að leita á náðir hins opinbera hafa haft, eru að mjög miklu leyti af þeim tekin, og ég held, að ekki geti talizt vansalaust að gera svo stóra breytingu, sem hér er farið fram á, án þess að þm. geri sér ljóst, hvert er verið að stefna með þessu, hve stórfelld stefnubreyting þetta er frá því, sem hefir verið hér áður. Það hefir tekið baráttu í áratugi að fá því komið í kring, að bætt væri úr þessu. Margir beztu rithöfundar þjóðarinnar hafa barizt fyrir því, að mannúðlegar væri farið með styrkþegana af hendi löggjafans. Ég vil minna á sögur eins og Einar H. Kvaran skrifaði á sínum fyrstu árum til þess að sýna, hve slæm kjör þeirra væru, sem væri hægt að flytja hvert sem valdhafanum þóknaðist. Við þekkjum það allir, hvernig barizt var á móti aldalöngu óréttlæti. Það var verið að heyja baráttu fyrir því að vekja siðferðismeðvitund þjóðarinnar og láta þá siðferðismeðvitund móta meðferðina á þeim fátæku. Það tókst með mjög langri og góðri baráttu að fá því framgengt, að framfærslulögin breyttust í það horf, að réttur styrkþega varð nokkru meiri en áður. Það eru ekki nema 6 ár síðan styrkþegar fengu kosningarrétt á Íslandi. og það er ekki nema álíka langt síðan réttur þeirra var að fullu viðurkenndur hér heima. Og nú verðum við að gera okkur það ljóst, hvaða gildi það hafði að hafa gefið þjóðinni þetta. Við verðum að gera það til þess, að menn átti sig á því, hverskonar verk er verið að vinna með því að draga nú úr þeirri siðferðismeðvitund, sem hafði fest rætur hjá þjóðinni.

Sá grundvöllur, sem gengið hefir verið út frá við þær breytingar til bóta, sem hafa verið gerðar á framfærslulögunum, er, að það sé ekki sök þeirra manna sjálfra, sem leita til hins opinbera, að þeir yrðu að gripa til þess. Sú viðurkenning, sem lá til grundvallar fyrir því, var sú, að þjóðfélagið ætti sjálft sökina á því, að menn yrðu að leita á náðir þess. Það lá í því viðurkenning á því, að það væri hverjum einstaklingi ofvaxið, eins og þjóðfélaginu nú er háttað, að geta séð sér borgið sjálfur af eigin rammleik. Orsökin fyrir því var sú, að það hafði komizt inn í meðvitund fólksins, að hið opinbera hefði fengið svo mikil ítök, að fjölda af mönnum var beinlínis bannað að bjarga sér og sjá fyrir sér og sínum. Það vita menn, að verkamaður, sem stendur atvinnulaus í þessu þjóðfélagi, verður að leita til bæjar eða ríkis eða annara, sem eiga vinnutæki. Það veit hver maður, að þegar þeim er neitað um að kaupa af þeim vinnukraftinn, þá eru þeim allar bjargir bannaðar og bíður þeirra þá ekkert annað en að svelta. Það er viðurkenningin fyrir þessari staðreynd, sem liggur til grundvallar fyrir því, að hið opinbera telur sér skylt að framfleyta þeim, sem af einhverjum ástæðum hafa orðið að leita á náðir þess. Er nokkur hér, sem neitar því, að atvinnulausir verkamenn hafi alltaf verið reiðubúnir til þess að vinna hver þau störf, sem þeir hafa átt kost á. Það er nú vitanlegt, að hér í Reykjavík eru nú á hverjum degi skráðir fleiri tugir ungra manna, sem tjá sig reiðubúna til þess að taka hverja þá vinnu, sem boðin er. Þetta er staðreynd, sem ég býst við, að enginn neiti. Það stendur ekki á verkamönnunum að vinna. Það stendur á valdhöfunum að tryggja verkamönnunum þessa vinnu. Það eru menn og stéttir, sem hafa völdin í þessu þjóðfélagi og ráðstafa því þannig, og ráða yfir öllum atvinnutækjum þjóðarinnar, og meðan ástæður eru þannig, að þessir menn, sem atvinnutækjunum ráða, njóta hverskonar einkaréttinda og sérréttinda, er það alþýða manna, sem ekki ræður yfir þessum tækjum, sem hefir ekkert annað að leita en til þess opinbera, svo framarlega sem henni er neitað um að hafa ofan af fyrir sér. Nú liggur hér fyrir að stíga stór spor aftur á bak. Það á að neita að sjá fyrir þessum mönnum og neita að viðurkenna, að hið opinbera sjálft eigi sökina á því, hvernig komið er. Það, sem svo liggur fyrir að gera með þessari breyt., er að líta héðan af á alla þá menn, sem héðan af verða styrkþegar, alla sem af framantöldum ástæðum verða að leita á náðir hins opinbera, sem þræla. Það er hætt að líta svo á sem þjóðfélagið hafi gert þeim órétt. Nú á að breyta þessu. Það á að beita aðstöðu hins opinbera gegn styrkþegunum. Það á að hætta að líta á þá sem menn, sem eigi kröfu til þess, að þjóðfélagið ekki svelti þá í hel. Það er litið á þá sem þræla. Þetta er efnið í 21. gr., sem ég ætla að lesa fyrir ykkur, með leyfi hæstvirts forseta:

„Sá, sem þiggur framfærslustyrk og er þó vinnufær, er skyldur að fara, hvert sem er innanlands, í viðunanlega vist, eða til atvinnurekstrar við viðunanleg skilyrði, eða vinna hverja þá vinnu, sem sveitarstjórn ákveður og honum er ekki um megn, meðan hann er ekki fær um, án sveitarstyrks, að framfleyta sér og þeim, er hann á fram að færa að lögum. Ákvæði sveitarstjórnar er hann skyldur að hlýða fyrst um sinn, enda þó hann vilji ekki kannast við, að vist sú eða vinna sé viðunanleg, er honum var boðin, en málið getur hann jafnframt kært fyrir lögreglustjóra framfærslusveitar, er sker úr því, eftir að hafa leitað álits tveggja óvilhallra manna og verkalýðsfélags á staðnum, ef slíkt er til. Úrskurði lögreglustjóra má skjóta til ráðherra.“

Einu takmarkanirnar, sem þarna eru settar, eru, að hann getur skírskotað til lögreglustjóra. Í núverandi lögum er líka ákvæði viðvíkjandi því, að þegar mönnum finnast þeir vera órétti beittir, geta þeir farið til lögreglustjóra, og veit ég um dæmi, þar sem heimilum hefir verið neitað um að fá styrk. Þessir menn hafa farið til lögreglustjóra til þess að fá úrskurð. Hér áður kvað hann upp úrskurði. Upp á síðkastið er varla mögulegt að ná rétti sínum. Það hefir hvað eftir annað komið fyrir hér í Reykjavík. að heimili hafa verið bjargarlaus, án þess að hafa á nokkurn hátt fengið rétti sínum framgengt. Rétturinn, sem hinum fátæku hefir verið gefinn til þess að ná rétti sínum, er hvergi til nema á pappírnum. Hver sá styrkþegi, sem ætlar sér að fara í mál við bæjarstjórnina til þess að fylgja rétti sínum, — ef það mistekst fyrir honum, verður hann að fara í framfærslunefndina, og þegar hann er búinn að þessu, er ekkert annað fyrir hann að gera en að fara í mál. Það hefir aldrei komið fyrir ennþá, að neinn fátækur maður hafi treyst sér til þess að fara í mál til þess að ná rétti sínum og til hvers væri það líka? Hvaða lögfræðingur mundi fást til þess að taka að sér málið? Og hvernig mundi lögreglustjórinn fara með það? Og hvernig mundi fátækur maður geta beðið 1–2 ár þangað til málið væri komið í kring? Það er þess vegna hægt að segja að með því ákvæði, að hægt sé að kæra til lögreglustjóra, er styrkþeganum enginn réttur gefinn. Það er aðeins á pappírnum og engin stoð í því. Hér er verið að segja við þá menn, sem sakir afstöðu sinnar í þjóðfélaginu verða að þiggja: Þið eruð þrælar. Þið eruð skyldugir að fara þangað að vinna, sem okkur þykir viturlegast. Það er með þessu ákvæði verið að rífa niður það, sem hefir unnizt á áratugum í því að gera fátækralöggjöfina mannúðlegri og koma í veg fyrir, að fátæklingarnir séu meðhöndlaðir eins og dýr.

Ég verð að segja, að mig undrar, hve mótmælalaust þessi löggjöf hefir gengið gegnum þingið fram að þessu. Það er gott dæmi um það, á hvaða braut okkar þjóðfélag virðist vera, að menn skuli samþykkja með eins miklum meiri hluta eins og þingið hefir gert að setja annað eins ákvæði inn eins og við gerum hér. Með þessu erum við að rífa niður á þessu sviði allt það, sem hefir verið byggt upp til mannúðar gagnvart þeim fátækustu á þessu landi. Það er verið að rífa niður störf, sem verkalýðsfélögin og beztu fulltrúar borgarastéttarinnar hafa unnið að árum saman. Það er verið að skapa ástand, sem gerir það að verkum, að áróðursrit eins og Gests Pálssonar og Einars H. Kvaran verða aftur „aktuel“. Það er verið með þessu að stíga 50 ár aftur í tímann, og hvernig stendur á því, að við verðum að gera þetta? Ég ætla ekki að fara langt út í það, en get ekki nema drepið á það. Það stendur svoleiðis á því, að framfærsluþyngstu ómagarnir á Íslandi, skuldakóngarnir, hálaunamennirnir á Íslandi, eru orðnir svo þungir á ríkissjóði, að til þess að geta haldið þeim uppi, verður að skera niður réttinn, sem þeir fátæku höfðu áður á undanförnum áratugum. Til þess að hlífa þeim hálaunuðu og ríku á að níðast á þeim fátæku og þeim, sem erfiðast eiga. Til þess að valda því óréttlæti, sem 10 millj. kr. lán til Kveldúlfs og annara slíkra hafa í för með sér fyrir þjóðfélagið, á að auka það óréttlæti, sem þeir fátækustu verða fyrir. Þetta er ástæðan fyrir því, að þessar brtt. liggja hér fyrir. Það á að móta álit þjóðfélagsins eingöngu með tilliti til þess hluta þess, sem hefir sölsað undir sig völdin. Ég ætla að láta þetta nægja um 21. gr.

Þá ætla ég að taka hér ákvæði til bráðabirgða, sem var bætt aftur í þessi lög og var úr höggorminum svokallaða, sem hér stakk upp hausnum. Með þessu ákvæði á sérstök nefnd að hafa með höndum allt það fé, sem varið er til framleiðslubóta og atvinnuaukningar. Þessi nefnd á í fyrsta lagi að ráðstafa öllu því fé, sem ætlazt er til, að veitt verði á fjárlögum til framleiðslubóta. Ríkisstjórn og Alþingi fá þessari nefnd vald í hendur, sem hún getur notað næstum eins og henni þóknast. Með þessu á að kippa burtu atvinnubótafénu eins og það hefir verið undanfarið. Það er nokkurnveginn auðséð, hvað valdhöfunum hefir þótt vera að. Þeim hefir þótt, að með atvinnubótafénu væri bæjarstjórnunum gefið of mikið vald til þess að hafa einhver áhrif á, hvernig þessu fé væri ráðstafað. Þeim, sem stjórna þingflokkunum, hefir þótt varhugavert, að bæjar- og sveitarfélög gætu haft eins mikil áhrif eins og undanfarið á það, hvernig þessu fé væri varið. Þeim hefir þótt hætta á, að bæjar- og sveitarstjórnir kynnu að standa nær almenningi og hafa meiri tilfinningu gagnvart þeim fátæku og taka tillit til þeirra. Þess vegna þótti ekki öruggt, að bæjar- og sveitarstjórnir hefðu með þetta að gera. Nú var þetta skipað í sérstaka nefnd, og náttúrlega verður hún á sérstökum launum og þarf að hafa skrifstofu. Það er kannske ekki það hættulegasta, þó það bætist við ein nefndin enn, því þessir menn tala mest um sparnað, en framkvæma hann ekki, en hitt er hættulegra, að þessa nefnd á að skipa þannig, að kjósendur geti engin áhrif haft um, hvernig hún sé skipuð.

Þessari nefnd er ætlað að hafa atvinnubótaféð, og ætlazt til þess, að hún stjórni því án þess að taka nokkurt tillit til verkalýðsins. Það á að nota vald þessarar nefndar til þess að fá því framgengt, að styrkþegarnir vinni fyrir lægri taxta heldur en verkalýðsfélögin hafa sett. Allir muna 9. nóv. 1932. Orsökin var sú, að bæjarstjórn Reykjavíkur ákvað að lækka laun við þá verkamenn, sem voru í atvinnubótavinnunni, og einnig hafði heyrzt í Sjálfstfl., að þetta ætti að vera upphafið að því að lækka launin hjá öllum verkamönnum.

Nú á að endurtaka í stærri stíl það, sem bæjarstjórn Reykjavíkur ekki tókst að gera 9. nóv. 1932. Nú á að gefa einni sérstakri n. rétt til að ráðstafa öllum styrkþegum á Íslandi, senda þá hvert á land sem er og láta þá vinna fyrir hvaða kaupi sem n. kann að ákveða. Þannig á að byrja hungurárás á verkalýðinn. Það á að skera niður réttindi fátæklinganna til þess að geta haldið þyngstu ómögunum, braskara og skuldaklíkunni, uppi. Og jafnframt er verið að tryggja það, að stóratvinnurekendurnir í landinn geti fengið þarna liðstyrk í sinni baráttu. Það stefnir allt að einu marki í þessari framfærslulöggjöf: Að efla réttindi þeirra ríku, en draga skóinn niður af alþýðunni og hneppa hana í enn meiri þrældóm en áður var. Það er gengið svo langt í þessu frv., að ef einhver bæjareða sveitarstjórn vill af sjálfsdáðum reyna að viðhalda þeirri stefnu, sem hefir verið viðurkennd sem mannúðar- og mannréttindastefna í þessum málum, þá á þessi n., sem gert er ráð fyrir í bráðabirgðaákvæðinu, að geta alveg sérstaklega tekið þar í taumana hjá viðkomandi sveitarfélagi. Við skulum segja, að alþýðan hefði sjálf meiri hl. í bæjarstjórn einhverstaðar og vildi ekki nota sér þessi ákvæði, þá getur þessi nefnd komið og sagt, að svo til megi það ekki ganga. Þessi nefnd getur skipað bæjarstjórninni að láta af sínu framferði og senda hina atvinnulausu menn hvert á land sem er í þrældóm. Þannig á að byrgja fyrir einu útgöngudyrnar, sem opnar voru fyrir alþýðuna, þar sem hún hefði sjálf meirihlutavald í bæjarstjórn og gæti þess vegna tryggt, að mannúðlega væri að farið. Ég vil lýsa því yfir, að okkar flokkur er algerlega andvígur því, að þetta verði að l. Hér á í einni svipan að eyðileggja þær umbætur, sem fengizt hafa á þessum málum á áratugum. Mér þætti það ekkert undarlegt, þó þeir menn, sem nú berjast fyrir þessum breyt., að þeir kæmu næst með það að afnema kosningarétt þeirra, sem af sveit þurfa að þiggja. Það væri alveg eftir þeim háu herrum. Ég vil alveg sérstaklega mæla á móti þessu frv., sérstaklega 21. gr. og ákvæðunum til bráðabirgða.