22.12.1939
Efri deild: 91. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1101 í B-deild Alþingistíðinda. (2496)

143. mál, síldarverksmiðja á Raufarhöfn o. fl.

*Jónas Jónason:

Ég er þakklátur bæði hv. 9. landsk. og hæstv. atvmrh. fyrir þær aths., sem þeir hafa gert við brtt. Það er betra, af því að ekki er svo naumt með tíma, að athuga þetta nánar með síldarverksmiðjustjórninni. Ég gat aðeins talað við suma í henni, og þeir voru þessu hlynntir.

Ég var að tala um það, áður en hæstv. ráðh. kom, að verksmiðjur Alliance's og Kveldúlfs væru að þessu leyti til fyrirmyndar, að þær eru reistar á eyðistöðum, þar sem ekki eru líkur til, að þorp skapist og ný vandræði komi til, en á Siglufirði hafa mjög athugulir menn játað, að verksmiðjustækkanir, sem þar eru framkvæmdar, og tilsvarandi atvinnuaukning að sumrinu hafi orðið til að draga að nýtt og nýtt fólk og magna í rauninni atvinnuleysið og vandræðin. Það er fjarstæða, og ég álít, að þjóðfélagið eigi ekki að stuðla að því, að láta fólkið þyrpast saman á stöðum, þar sem það hlýtur að verða atvinnulaust. Með því að lögfesta þetta ákvæði er hægt að koma í veg fyrir, að Raufarhöfn vaxi. — Þegar hæstv. atvmrh. hefir talað við verksmiðjustj., vona ég, að hann hafi sannfærzt um, að það dugir ekki til lengdar að hafa ekki þetta ákvæði í lögum. Það verður pressað á verksmiðjustj. af mönnum, sem komnir eru á Raufarhöfn eða vilja komast þangað, og henni verður varla stætt án lagastoðar í málinu. Ég vona, að þessu verði vel ráðið til lykta, þegar þar að kemur.