22.12.1939
Efri deild: 91. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 1101 í B-deild Alþingistíðinda. (2498)

143. mál, síldarverksmiðja á Raufarhöfn o. fl.

*Erlendur Þorsteinsson:

Herra forseti! Ég verð að taka undir það með hv. 9. landsk., að það hljóti að vera mjög svo vafasamt, hvort brtt. eigi að koma inn í þessi lög. Þó hefir mér skilizt, að brtt. sé sérstaklega stefnt að því að fella úr gildi það samkomulag, sem nú er fyrir hendi á þeim stöðum, þar sem ríkisverksmiðjur eru, um hlutfallið milli heimamanna og námsmanna í vinnunni. Á Siglufirði t. d. eru um það ákveðnir samningar, hve margir námsmennirnir megi vera á hverjum tíma, mig minnir allt að 24. Á Raufarhöfn munu gilda svipaðir samningar, og þykir vafalaust hart undir því að búa, ef verkamenn á staðnum eru sviptir viðurkenndum samningsrétti um málið í framtíðinni.

Áður en hæstv. atvmrh. lýsir afstöðu sinni í málinu, að fengnum tillögum síldarverksmiðjustj., ætti hann að gefa upp, hversu margir námsmenn hafa haft atvinnu á Hjalteyri og hvernig hlutfallið verður þar í samanburði við hlutföll í samningum verkamanna við hinar ýmsu ríkisverksmiðjur. Ég hygg, að einkafyrirtækin hafi engu betur hjálpað námsmönnum en samningar verklýðsfélaganna hafa gert.